Minntust fallinna háskólanema með sýningu á Háskólatorgi

Jafnréttiskólinn (GRÓ GEST) ásamt Úkraínuverkefni Háskóla Íslands stóð í vikunni fyrir sýningunni „Óútgefin prófskírteini: Aldrei útskrifuð, aðeins minnst“á Háskólatorgi, þar sem fallinna úkraínskra námsmanna var minnst en um þessar mundir eru fjögur ár frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu.
Nemendur í Jafnréttisskólanum settu sýninguna upp á bláa veggnum í Tröð, ganginum milli Gimlis og Háskólatorgs, og stóð hún frá 23.-26. febrúar. Sýningin hefur ferðast um heiminn og samanstendur af 40 táknrænum útskriftarskírteinum ásamt myndum sem fylgir hverju og einu skírteini. Hvert skírteini segir sögu úkraínsks námsmanns sem aldrei mun útskrifast því viðkomandi lét lífið í innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.
Daryna Zavhorodnia, sem nú stundar nám við GRÓ GEST, er einn af upphafsmönnum sýningarinnar sem hefur verið sett upp í ólíkum háskólum og söfnum í yfir fjörutíu löndum. Að sýningunni standa Ukrainian initiative Memorial, Mennta- og vísindaráðuneyti Úkraínu og alþjóðlegt sjálfboðaliðasamband útkraínskra stúdenta og nýútskrifaðra kandídata sem heldur utan um verkefnið á alþjóðavettvangi.
Daryna var meðal þeirra sem tóku til máls á opnunarviðburði vegna sýningarinnar sem fram fór í stofu 101 á Háskólatorgi 24. febrúar, þegar slétt fjögur ár voru liðin frá innrás Rússa í Úkraínu. Auk Darynu fluttu Irma Erlingsdóttir, prófessor og forstöðumaður GRÓ GEST, og Giti Chandra, rannsóknadósent við Rannsóknastofu í jafnréttisfræðum og kennari við GRÓ GEST, erindi á opnunarviðburðinum. Þá stóðu nemendur GRÓ GEST fyrir tveimur gjörningum sem snertu mjög við gestum. Annars vegar var um að ræða frumsamið leikverk þar sem byssumenn myrða tvo stúdenta og hins vegar tónlistaratriði þar sem sex nemendur komu saman og sungu úkraínska lagið “Ty zhyvyi” (“Þú ert lifandi”) og heiðruðu þannig minningu þeirra sem hafa fallið í stríðinu i Úkraínu en munu áfram lifa í hugum og hjörtum fólks.
Ítarlegri umfjöllun um sýninguna og opnunarviðburðinn má finna á enskum vef HÍ.
Myndir Kristins Ingvarssonar frá opnunarviðburði sýningarinnar má sjá hér að neðan.










