Skip to main content
22. júlí 2026

Meistaranemar kynntu rannsóknir sínar á föstudagsmálþingi Háskólans á Hólum

Þrír aðilar saman á mynd, Dylan er í miðjuni og Anja til hægri

Föstudaginn 26. júní fór fram föstudagsmálþing Háskólans á Hólum (nú Háskóli Íslands á Hólum), þar sem tveir meistaranemar kynntu rannsóknarverkefni sín. Málþingið var hluti af reglulegri fyrirlestraröð skólans sem veitti nemendum, rannsakendum og gestum tækifæri til að miðla þekkingu, kynna rannsóknir sínar og efla fræðilega umræðu.

Dylan O'Hagan, meistaranemi í MARBIO-námi við Háskólann á Hólum undir leiðsögn Camille A. Leblanc, kynnti rannsókn sína Parasite diversity and load among and within small, benthic Icelandic Arctic charr (Salvelinus alpinus) populations. Rannsóknin fjallaði um fjölbreytni og útbreiðslu sníkjudýra í íslenskum botnlægum bleikjustofnum og varpar ljósi á vistfræðilega þætti sem hafa áhrif á þessa einstöku fiskistofna.

Anja Herálvsdóttir Jensen, meistaranemi í vatnalíffræði við Háskólann á Hólum, tók þátt í málþinginu í fjarfundi frá Færeyjum. Hún kynnti rannsókn sína Antimicrobial resistance in seabirds as indicators of untreated wastewater pollution in the Faroe Islands, þar sem hún rannsakaði sýklalyfjaónæmi hjá sjófuglum sem vísbendingu um mengun frá óhreinsuðu skólpi í Færeyjum.

Bæði fluttu þau vandaðar og áhugaverðar kynningar sem endurspegluðu metnaðarfull rannsóknarverkefni og fagleg vinnubrögð. Málþingið var vel sótt af kennurum, doktorsnemum, starfsfólki, starfsnemum og nemendum og skapaðist þar góður vettvangur fyrir fræðilega umræðu og miðlun þekkingar.

Við óskum Dylan og Anju innilega til hamingju með vel heppnaðar kynningar og óskum þeim velfarnaðar í áframhaldandi rannsóknum og námi.

Dylan og Anja að kynna verkefnin sín á föstudagsmálþingi