Skip to main content
6. febrúar 2026

Mannréttindi, inngilding, hinseginleiki og gervigreind á Jafnréttisdögum

Mannréttindi, inngilding, hinseginleiki og gervigreind á Jafnréttisdögum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Bakslag í mannréttindum, samspil gervigreindar og kynjajafnréttis og kynfrelsis, inngilding skynsegin nema og nemenda af ólíkum uppruna í háskólum, veruleiki hinsegin nemenda og samband kynjajafnréttis og friðar er meðal þess sem verður til umfjöllunar á hinum árlegu Jafnréttisdögum sem fara fram 9.-12. febrúar í háskólum landsins.

Alls verða í boði rúmlega 30 viðburðir um allar hliðar jafnréttismála eða því sem næst, bæði fyrirlestrar, umræðufundir, gjörningar og list- og leiksýningar. Dagskráin er ýmist á íslensku eða ensku og mikil áhersla er á gott aðgengi að viðburðum, hvort sem þeir fara fram í streymi eða á staðnum.

Markmið Jafnréttisdaga, sem nú eru haldnir í 18. sinn, er að skapa umræðu um jafnréttismál á Íslandi þar sem bæði er tekið mið af tíðaranda og nýjustu rannsóknum innan fræðanna. Þannig snerta viðburðirnir kyn og femínisma, hinseginleika, uppruna og rasisma, fötlun, ableisma og algilda hönnun, hatur og mismunun og fordóma og forréttindi. 

Óhætt er að fullyrða að öll eigi að finna eitthvað sitt hæfi á Jafnréttisdögunum en auk ofangreindra viðfangsefna verður rýnt í staðalímyndir og fordóma innan háskólasamfélagsins, félagslegan ójöfnuð, íslensku sem annað mál, fjölgun karla í hjúkrunarfræði, samfélagsleg áhrif skapandi greina, afglæpavæðingu þungunarrofs og  fötlunar- og hinseginfræði í sviðslistum.

Hægt er að kynna sér dagskrá Jafnréttisdaga á jafnrettisdagar.is en þar er jafnframt að finna hlaðvarpsefni og upptökur frá Jafnréttisdögum fyrri ára.
 

Logo Jafnréttisdaga