Leitað að nýstárlegum hugmyndum fyrir Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ

Leit að hagnýtum hugmyndum fyrir Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands stendur nú yfir en samkeppnin er opin bæði stúdentum og starfsfólki HÍ. Skilafrestur hugmynda er til 16. mars.
Leitað er að nýstárlegum hugmyndum sem kunna að stuðla að samfélagslegum eða viðskiptalegum ávinningi án tillits til þess hvort hugmyndin hafi fjárhagslegan hagnað að markmiði.
Veitt verða verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í fjórum flokkum: Heilsa og heilbrigði, Tækni og framfarir, Samfélag og Hvatningarverðlaun. Auk þess verður sigurvegari samkeppninnar valinn úr hópi verðlaunahafa í flokkunum fjórum. Til mikils er að vinna fyrir þátttakendur, allt að 2,5 milljónir króna.
Við mat á hugmynd skoðar dómnefndin einkum nýnæmi og frumleika, útfærslu, samfélagsleg áhrif, m.a. út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, og hvort verkefnið sé í samræmi við stefnu skólans og styðji við starfsemi hans.
