Skip to main content
10. september 2026

Læknanámið við HÍ hlýtur alþjóðlega vottun World Federation of Medical Education

Læknanámið við HÍ hlýtur alþjóðlega vottun World Federation of Medical Education - á vefsíðu Háskóla Íslands

Á vordögum var stórum áfanga náð við Læknadeild og Háskólann allan þegar læknanámið hlaut alþjóðlega vottun World Federation of Medical Education (wfme.org). Samtökin voru stofnuð árið 1972 að tilstuðlan Heimssamtaka lækna (WMA) og  Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) til að auka gæði læknanáms og tryggja að það uppfylli alþjóðlega vísindalega og siðfræðilega staðla. Læknanámið við HÍ er fyrsta læknanámið á Norðurlöndunum sem hlýtur þessa vottun. 

Þriggja ára ferli

Vottunarferlið hófst formlega árið 2023 með samstarfssamningi HÍ og vottunarstofunnar AQU í Barcelona. Undirbúningur hafði þó staðið lengi yfir og hlaut Læknadeild styrk úr Aldarafmælissjóði til að ráða verkefnastjóra. Fyrsti fasi vottunarferlisins var ritun umfangsmikillar sjálfsmatsskýrslu þar sem læknanáminu var lýst frá öllum hliðum og gögn lögð fram til stuðnings þess að kröfum WFME væri mætt. Í október 2025 kom alþjóðleg úttektarnefnd í 3 daga heimsókn og ræddi við helstu hagaðila námsins – stjórnendur, kennara, nemendur og atvinnuveitendur nýútskrifaðra lækna. Einnig heimsótti hún allar helstu kennslustöðvar læknanámsins. Fyrstu (og einu!) gulu viðvörun haustsins bar upp á þeim degi sem nefndin átti að taka út aðstæður á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Með snarræði var þéttri dagskrá þess dags snúið á fjarfundaform þar sem úttektarnefndin fékk meðal annars „virtual tour" um sjúkrahúsið. Úttektarnefndin var mjög jákvæð gagnvart læknanáminu og heimsókninni sjálfri og skilaði ítarlegri skýrslu í lok árs 2025 um námið, styrkleika þess og veikleika og hvernig það uppfyllti kröfur WFME. Nokkrar athugasemdir voru gerðar sem stjórnendur Læknadeildar brugðust við, og komu þeim er lúta að innviðum HÍ í ferli. Vottunin var svo í höfn í maí 2026, á 150 ára afmæli læknanáms  hérlendis. Því verður svo fagnað með afmælisþingi 16. desember.

Það er sérstaklega mikilvægt fyrir okkar fámenna land að fá slíka alþjóðlega viðurkenningu á innihaldi og gæðum námsins. Bæði greiðir það leið íslenskra læknakandidata að sérnámi erlendis, en vestan hafs og víðar er fyrirhugað að gera kröfur um kandídatspróf frá skóla með slíka vottun þegar sótt er um sérnám. Einnig var ferlið afar gagnlegt fyrir innra gæðastarf Læknadeildar og HÍ í heild. Læknadeild þakkar öllum sem komu að ferlinu kærlega fyrir vel unnin störf.
 

Neðri röð frá hægri: Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir kennslustjóri, Sigurbjörg Björnsdóttir gæðastjóri sem stýrði vottunarferlinu, Sædís Sævarsdóttir deildarforseti. Efri röð frá hægri: Magnús Ragnar Guðmundsson deildarstjóri, Stefán Þórarinn Sigurðsson varadeildarforseti, Þórarinn Guðjónsson fv. deildarforseti og svo vottunarnefndin, þar sem fulltrúi íslenskra heilbrigðisyfirvalda var Guðrún Aspelund sóttvarnarlæknir.