Kynningarfyrirlestur Kolbrúnar Þ. Pálsdóttur prófessors

Um 60 gestir sóttu kynningarfyrirlestur Kolbrúnar Þ. Pálsdóttur prófessors á Menntavísindasviði sem fram fór í stofu S-114 í Sögu þann 9. júní síðastliðinn. Fyrirlesturinn var haldinn í tilefni af framgangi hennar í stöðu prófessors við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, auk þess sem Kolbrún lætur af störfum í lok júní sem forseti sviðsins eftir farsælt starf.
Ólafur Páll Jónsson prófessor kynnti Kolbrúnu til leiks. Í ávarpi sínu rakti hann feril hennar í stuttu máli og þakkaði henni sérstaklega fyrir öflugt framlag til Menntavísindasviðs, bæði á vettvangi rannsókna og í leiðtogahlutverki hennar sem forseta. Hann lagði áherslu á þann eldmóð og sýn sem Kolbrún hefur sýnt í starfi sínu og þau varanlegu áhrif sem hún hefur haft á fræðasvið, starfsfólk og stúdenta.
Í fyrirlestri sínum, sem bar yfirskriftina Að gera hið óformlega sýnilegt, fjallaði Kolbrún um samspil eigin ævireynslu, starfa sinna á vettvangi skóla- og frístundastarfs og kennslu- og rannsóknarferils síns innan Háskólans á sviði uppeldis- og menntunarfræða og tómstunda- og félagsmálafræða. Hún fjallaði um rannsóknir sínar á mikilvægi óformlegs náms í lífi barna og ungmenna og ræddi það í samhengi við menntastefnu og mikilvægi þess að unnið væri heildstætt með nám innan menntakerfisins. Þá vék hún einnig að störfum sínum sem forseti Menntavísindasviðs og þeim breytingum og áskorunum sem hefur verið tekist á við á undanförnum árum.
Myndir Kristins Ingvarssonar frá viðburðinum má sjá hér að neðan.






