Júlía Birgisdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn í verkefnastjórnun

Júlía Birgisdóttir útskrifaðist með ágætiseinkunn úr verkefnastjórnun frá Félagsvísindasviði Háskóla Íslands 13. júní.
Júlía er fædd og alin upp að mestu í Reykjavík en hefur búið í þremur heimsálfum og fjórum löndum. Hún er með BA-gráðu í hagfræði og segir einn af sínum stærstu faglegu kostum vera tímastjórnun og skipulag eiginleika sem nýtast einstaklega vel í verkefnastjórnun.
Júlía valdi verkefnastjórnun þar sem hún hafði áður starfað við mannauðsmál og innleiðingu verkefna hjá Miðlun, nú Takk. Hún fann að styrkleikar hennar lægju sérstaklega í verkefnavinnu og vildi efla og dýpka þekkingu sína á því sviði.
Í náminu lagði Júlía áherslu á að nýta sem flest tækifæri sem stóðu til boða. Hún fór í skiptinám til Copenhagen Business School í Danmörku í gegnum Aurora-samstarfið, fékk starfsþjálfunarstöðu hjá Eimskip og tók þátt í verkefnahópi sem vann að innleiðingu Viva Engage. Hún vann einnig í rannsóknarhópi með Adeel Akmal um aðgengi fólks með þroskahömlun að heilbrigðisþjónustu og tók þátt í skipulagningu Verkefnastjórnardagsins 2024.
„Námið varð allt sem ég bjóst við og svo miklu meira,“ segir Júlía, sem eignaðist einnig góðar vinkonur í hópi samnemenda sinna.
Það sem kom henni skemmtilega á óvart var hversu sterk tengsl námsins voru við atvinnulífið og hversu dýnamískt og lifandi námið var. Hún segir lokaritgerðina hafa verið krefjandi verkefni en undir handleiðslu Adeel hafi hún að lokum skilað ritgerð sem hún er mjög stolt af.
Aðspurð um ráð til nýnema segir Júlía mikilvægt að sinna náminu jafnt og þétt, mæta í tíma og nýta tækifærin sem námið býður upp á. Hún hvetur nemendur einnig til að hugsa snemma um hvaða stefnu þeir vilja taka og hvað þeir vilja fá út úr náminu. „Þetta var alveg kýrskýrt hjá mér frá upphafi og er í anda verkefnastjórnunar og stefnumótunar,“ segir hún.
Í dag starfar Júlía sem verkefnastjóri hjá HMS, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hún segir starfið nánast sérsniðið að þeirri þekkingu sem hún öðlaðist í náminu og að það sé dýrmætt að fá að starfa við eitthvað sem tengist náminu með svo skýrum hætti.
Júlía er sérstaklega stolt af því að útskrifast með ágætiseinkunn, enda var það markmið sem hún setti sér frá upphafi. Hún er einnig stolt af lokaritgerðinni sinni, sem hún segir veita mikilvæga innsýn í árangursstjórnun hjá opinberri stofnun.
Utan vinnu og náms hjólar Júlía allra sinna ferða og stundar sjóböð helst ísböð. „Það er ekkert sem toppar að fara út í ískaldan sjó í brjáluðu veðri,“ segir hún. Góðar bækur, gott kaffi og gott súkkulaði gera lífið líka aðeins betra.
Til hamingju með glæsilegan árangur, Júlía!
