Skip to main content
16. febrúar 2026

Jón Geir tekinn inn í Konunglegu sænsku skógræktar- og landbúnaðarakademíuna

Jón Geir tekinn inn í Konunglegu sænsku skógræktar- og landbúnaðarakademíuna - á vefsíðu Háskóla Íslands

Jón Geir Pétursson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands, var fyrir skemmstu tekinn inn í Konunglegu sænsku skógræktar- og landbúnaðarakademíuna (Kungliga Skogs- och Lantbruksakademien, KSLA) við hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu í Stokkhólmi. 
Karl XVI Gústaf Svíakonungur, verndari akademíunnar, var viðstaddur athöfnina.

Konunglega sænska skógræktar- og landbúnaðarakademían er ein virtasta fagakademía Norðurlanda á sviði náttúruauðlinda, landbúnaðar, skógræktar og umhverfismála og hefur starfað frá árinu 1811 undir verndarvæng sænsku hirðarinnar.
Akademían gegnir mikilvægu hlutverki sem óháður vettvangur vísinda, stefnumótunar og atvinnulífs og hefur áhrif á þróun sjálfbærrar auðlindanýtingar bæði í Svíþjóð og á alþjóðavettvangi.

Aðild að akademíunni er veitt einstaklingum sem hafa átt verulegt framlag til rannsókna, stjórnsýslu eða atvinnuþróunar á þessum sviðum og telst aðildin því mikil alþjóðleg viðurkenning. Starfsemi akademíunnar spannar ráðgjöf til stjórnvalda, útgáfu vísindalegra skýrslna og samstarf við alþjóðastofnanir og sérfræðinet. Akademían er því mikilvægur tengiliður milli vísinda og samfélags þegar kemur að framtíðarnýtingu lifandi náttúruauðlinda og sjálfbærni.
 

Sex alþjóðlegir meðlimir voru teknir inn í KSLA í ár. Jón Geir Pétursson er hér fyrir miðju. MYND/Erik Cronberg

Brýnt framlag Jóns Geirs til auðlinda- og umhverfismála

Jón Geir var einn sex nýrra alþjóðlegra meðlima sem teknir voru inn í KSLA að þessu sinni. Hann hefur unnið rannsóknir á sviði nýtingar náttúruauðlinda og var leiðandi um árabil í stefnumótun og stjórnsýslu ýmissa umhverfis- og auðlindamála m.a. á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar.

Starf Jóns Geirs er mikilvægt í samhengi samtímans þar sem áskoranir tengdar loftslagsbreytingum, auðlindanýtingu og sjálfbærni kalla á samþættingu vísinda, stjórnsýslu og samfélagslegra lausna. Hann hefur með störfum sínum lagt sitt af mörkum til að efla skilning á því hvernig samfélög geta stjórnað náttúruauðlindum á ábyrgan og sjálfbæran hátt. Rannsóknir hans eru þverfræðilegar teygja sig langt úr fyrir landsteinana, þar á meðal til landa sunnan Sahara-eyðimerkurinnar í Afríku.

Nánari upplýsingar störf Konunglegu sænsku skógræktar- og landbúnaðarakademíunnar KSLA.

Jón Geir Pétursson tekur við viðurkenningunni