Skip to main content
12. ágúst 2026

Jón Atli hlýtur viðurkenningu fyrir einstakt framlag til fjarkönnunar 

Jón Atli hlýtur viðurkenningu fyrir einstakt framlag til fjarkönnunar  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, hlaut fyrr í vikunni verðlaun alþjóðlegu samtakanna IEEE Geoscience and Remote Society (GRSS) fyrir framúrskarandi framlag á sviði fjarkönnunar. Jón Atli tók við verðlaununum á ráðstefnu samtakanna, IGARSS 2026, sem haldin er í Washington DC í Bandaríkjunum. Þess má geta að ráðstefna IGARSS 2027 verður haldin í Reykjavík 11.-16. júlí 2027. 

Verðlaun GRSS sem Jóni Atla hlotnuðust nefnast Fawwaz Ulaby Distinguished Achievement Award og eru árlega veitt einstaklingi sem hefur á ferli sínum átt gríðarlegt framlag á sviði tækni í fjarkönnun. Fram kom við afhendingu verðlaunanna að Jón Atli hljóti þau fyrir „einstakt framlag til framfara á sviði mynstur- og myndgreiningar ásamt gagnabræðslu innan fjarkönnunar” (“extraordinary contribution to the progress of the field of analysis, recognition and fusion of remote sensing”). Fjarkönnun snýst um að taka stafrænar myndir úr gervitunglum, flugvélum eða drónum og fjarkönnunarrannsóknir ganga m.a. út á að þróa aðferðir til að draga fram upplýsingar úr slíkum myndum ásamt því að safna og vinna úr fjarkönnunargögnum. Hægt er að nýta fjarkönnun til að fylgjast með ýmsum umhverfisbreytingum, svo sem á gróðri, jöklum og hafi, og einnig framvindu eldsumbrota, svo dæmi séu tekin. 

Jón Atli Benediktsson er hér ásamt öðrum verðlaunahöfum á ráðstefnunni IGARSS 2026, sem haldin er í Washington DC í Bandaríkjunum, og forsprökkum samtakanna. 

Það var Saibun Tjuatja, forseti GRSS, sem afhenti Jóni Atla viðurkenninguna á mánudag. Viðurkenningin er kennd við hinn virta vísindamann Fawwaz T. Ulaby, prófessor í rafmagnsverkfræði og tölvunarfræði við University of Michigan í Bandaríkjunum, sem er þekktastur fyrir brautryðjendastarf í örbylgju- og ratsjártækni í fjarkönnun. Í tilefni 65 ára afmælis GRSS var það Ulaby sjálfur sem tilkynnti um verðlaunahafann í ár eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. 

Jón Atli hefur fengið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir vísindastörf sín í gegnum árin. Hann var í fyrra kjörinn í Bandarísku verkfræðiakademíuna (National Academy of Engineering/NAE) en í hana eru einungis valdir þeir verkfræðingar sem hafa átt brýnt framlag til mannkyns í störfum sínum. Þá hlaut hann viðurkenningu GRSS fyrir framlag til menntunar á sviði fjarkönnunar árið 2020 og hefur m.a. hlotið verðlaun samtakanna fyrir framúrskarandi vísindagreinar þrisvar sinnum. Enn fremur hefur hann m.a. hloti heiðursverðlaun Verðlaunasjóðs Ásu Guðmundsdóttur Wright fyrir vísindastörf. Jón Atli er í hópi allra fremstu fræðimanna á sínu sviði í heiminum og hefur átta ár í röð verið á lista greiningarfyrirtækisins Clarivate Analytics yfir áhrifamestu vísindamenn heims.

Jón Atli er höfundur yfir 500 ritrýndra vísindagreina. Þá hefur hann verið ötull í ritstjórn ýmissa alþjóðlegra fræðirita á sviði fjarkönnunar og hann er núverandi aðalritstjóri IEEE Press, bókaútgáfu Institute of Electrical and Electronics Engineers sem eru stærstu samtök tæknimenntaðra í heiminum með yfir 500.000 meðlimi. Jón Atli hefur einnig sinnt nýsköpun og stofnaði ásamt Einari Stefánssyni prófessor og fleirum sprotafyrirtækið Oxymap sem starfar að greiningu augnlæknisfræðilegra mynda.

Það var Saibun Tjuatja, forseti GRSS, sem afhenti Jóni Atla viðurkenninguna á ráðstefnu alþjóðlegu samtakanna