Jiaxin Zhao útskrifaðist með ágætiseinkunn í afbrotafræði

Jiaxin Zhao, sem er frá Kína, útskrifaðist með meistaragráðu í afbrotafræði frá Félagsvísindasviði Háskóla Íslands 13. júní.
Jiaxin valdi Háskóla Íslands meðal annars vegna þess að skólinn býður upp á meistaranám í afbrotafræði á ensku. Hún nefnir einnig gott akademískt orðspor námsins, stuðning kennara og tækifæri til alþjóðlegs samstarfs og faglegrar þróunar sem mikilvægar ástæður fyrir valinu.
Það sem stóð helst upp úr í náminu var að fá að læra af metnaðarfullum og hvetjandi kennurum sem veittu henni mikilvægan stuðning í gegnum námið. Hún tók einnig þátt í Erasmus+ skiptinámi sem gaf henni tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn, kynnast nýju námsumhverfi og tengjast nemendum með ólíkan bakgrunn.
Jiaxin lauk jafnframt starfsnámi hjá Sameinuðu þjóðunum, þar sem hún fékk tækifæri til að nýta fræðilega þekkingu sína á alþjóðlegum vettvangi. Sú reynsla styrkti enn frekar áhuga hennar á rannsóknum og stefnumótun á sviði afbrotafræði.
Aðspurð um góð ráð til nýnema segir Jiaxin mikilvægt að taka virkan þátt í náminu, fylgja fyrirlestrum og lesefni vel eftir og hika ekki við að spyrja spurninga þegar eitthvað er óljóst. Hún hvetur nemendur einnig til að nýta sér þekkingu og reynslu kennara og óska eftir endurgjöf í gegnum námið.
Eftir útskrift stefnir Jiaxin á að halda áfram á akademískri braut í afbrotafræði og er nú að skoða tækifæri til doktorsnáms. Samhliða því vill hún gefa sér meiri tíma í skapandi skrif, en hún hefur áhuga á bæði fræðilegum og skapandi skrifum.
Til hamingju með glæsilegan árangur, Jiaxin!
