Skip to main content
27. júlí 2026

Hross óskast til tamningar og þjálfunar á haustönn 2026 -Fullbókað

Hestakona að klappa hesti

Hestafræðideild Háskólans á Hólum leitar að efnilegum trippum til tamningar og þjálfunar á haustönn 2026. Verkefnið er hluti af námi annars árs nemenda við deildina og hefur um árabil verið unnið í góðu samstarfi við hrossaræktendur víðs vegar um landið.

Nemendur vinna með hrossin undir leiðsögn reyndra reiðkennara skólans og fá verklega þjálfun í frumtamningum og grunnþjálfun. Áhersla er lögð á að byggja upp traust og gott samband milli manns og hests, ásamt því að efla jafnvægi, samstarfsvilja og góða líkamsbeitingu hestsins. Jafnframt fá nemendur þjálfun í fjölbreyttum aðferðum, meðal annars teymingum, vinnu við hendi, langan taum og reið á víðavangi.

Tamningartímabilið er áætlað frá 24. ágúst til 4. desember 2026, með fyrirvara um ófyrirséðar breytingar.

Forkröfur

Tekið verður á móti tryppum sem eru:

  • fædd árið 2022 eða 2023,
  • fortamin, að lágmarki bandvön,
  • komin með góðan líkamlegan þroska.

Æskilegt er að trippin séu undan fyrstu verðlauna stóðhestum. Ekki er tekið við ógeltum folum.

Kostnaður og þjónusta

Kostnaður fyrir allt tímabilið er 215.250 kr. (án virðisaukaskatts), með fyrirvara um breytingar.

Innifalið er:

  • uppihald,
  • járningar,
  • ormalyfsgjöf,
  • munnskoðun framkvæmd af dýralækni.

Ef kalla þarf til dýralæknis vegna slyss eða veikinda ber eigandi hestsins kostnað af þeirri þjónustu.

Mikilvægar upplýsingar

Á meðan á námskeiðinu stendur er hesturinn hluti af kennslu nemandans. Vegna persónuverndarlaga veitir skólinn því ekki upplýsingar um námsframvindu nemenda. Öll samskipti varðandi hestinn fara í gegnum umsjónarkennara námskeiðsins.

Skráning

Hrossaeigendur sem hafa áhuga á að senda hross til tamningar og þjálfunar eru hvattir til að skrá þau í gegnum skráningarform. - Skráning fer fram hér

Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við Ísólf í gegnum netfangið isolfur@hi.is.

Hestur með faxið yfir andlitinu. Snjór í fjöllum á bakvið