Skip to main content
18. júní 2026

HÍ og ÍSÍ semja um aukið svigrúm í námi fyrir afreksíþróttafólk

HÍ og ÍSÍ semja um aukið svigrúm í námi fyrir afreksíþróttafólk - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hafa undirritað samstarfssamning sem ætlað er að auðvelda afreksfólki að stunda nám við skólann samhliða afreksíþróttaiðkun með það fyrir augum að hópurinn nái góðum árangri bæði í námi og á íþróttavellinum. Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, undirrituðu samninginn í Háskóla Íslands fyrr í vikunni.

Samningurinn er gerður í framhaldi af stefnumótun stjórnvalda um bætta umgjörð fyrir afreksíþróttafólk á Íslandi sem unnið hefur verið að undanfarin ár. Í nýrri framtíðarstefnu stjórnvalda er lögð rík áhersla á að styrkja þarf samstarf ÍSÍ og  háskólasamfélagsins m.a. með því að samþætta betur nám og afreksíþróttaferil, framkvæma reglulegar afkastagetumælingar meðal afreksíþróttafólks og auka nýsköpun og þekkingu á sviði íþrótta. Meðal þeirra sem komið hafa að stefnumótun stjórnvalda er Erlingur Jóhannsson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði við Menntavísindasvið, Háskóla Íslands og Kristín Birna Ólafsdóttir, afreksstjóri ÍSÍ.

Það eru merk tímamót að nú hafa Háskóli Íslands og ÍSÍ undirritað samning sem kveður m.a. á um að ÍSÍ skilgreini þann hóp afreksíþróttafólks sem þarf á sveigjanleika í námi að halda vegna afreksíþróttaiðkunar sinnar. Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ) mun skilgreina hópinn í samvinnu við sérsambönd ÍSÍ og upplýsa HÍ um hverjir tilheyra hópnum. 

Samkvæmt samningnum ber því afreksíþróttafólki, sem þarf á auknum sveigjanleika að halda í námi, jafnframt að framvísa skriflegri staðfestingu frá ÍSÍ um að það tilheyri afrekshópi sambandsins. Auk þess þarf afreksfólkið að upplýsa formann þeirrar námsbrautar, þar sem það stundar nám, og umsjónarkennara í þeim námskeiðum sem það sækir um þörf fyrir sveigjanleika í námi strax í upphafi kennslumisseris.

Háskóli Íslands mun samkvæmt samningnum leita leiða til að veita afreksíþróttafólkinu sveigjanleika varðandi tímasókn, tímasetningu verkefnaskila og prófa og möguleika á að stunda hlutanám vegna t.d. æfinga, æfingabúða eða keppni á stórmótum eins og Evrópu- og heimsmeistaramótum og á Ólympíuleikum.
 

Fulltrúar Háskóla Íslands og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands við undirritun samkomulagsins á rektorsskrifstofu fyrr í vikunni.