Skip to main content
10. september 2026

Vísindamenn HÍ leita að fólki sem vill taka við peningum

HÍ leitar að fólki sem vill taka við peningum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þegar einn deilir þarf annar að taka við.

Teymið að baki rannsókninni VAL við Háskóla Íslands leitar nú að fólki, 18 ára og eldra, sem er tilbúið að vera mögulegur viðtakandi peningagreiðslu. Með skráningu getur fólk hjálpað til við undirbúning stórrar rannsóknar á mannlegri hegðun og ákvarðanatöku í daglegu lífi sem hefst á næstunni.

Í hluta VAL-rannsóknarinnar taka þátttakendur m.a. ákvarðanir um hvernig peningum er skipt milli þeirra sjálfra og annarrar manneskju sem þeir þekkja ekki. Sumar þessara ákvarðana leiða til raunverulegra greiðslna. Til þess þarf raunverulegt fólk hinum megin við valið.

Skráning tryggir ekki greiðslu, en ef til hennar kemur verður upphæðin á bilinu 1.450 til 4.350 krónur. Hvort greiðsla berst og hversu há hún verður ræðst af handahófsvali og ákvörðun þátttakandans sem viðtakandinn er paraður við. Þátttakandinn fær engar upplýsingar um hver viðtakandinn er.

Hvað þarf að gera?

Áhugasamir skrá kennitölu, netfang og íslenskt bankareikningsnúmer og samþykkja vinnslu upplýsinganna í skráningarforminu. Upplýsinganna er aflað fyrir fram svo hægt sé að millifæra mögulega greiðslu þegar þátttakandinn lýkur rannsókninni. Netfangið er aðeins notað til að tilkynna ef greiðsla hefur farið fram. Viðtakendahlutverkinu fylgja engin frekari verkefni.

Í skráningarforminu er útskýrt hvernig farið er með upplýsingarnar og hvernig hægt er að draga samþykki sitt til baka.

Skráðu þig hér sem mögulegan viðtakanda greiðslu.

Lokað verður fyrir skráningu þegar tilskildum fjölda viðtakenda hefur verið náð.

Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. 

Meira VAL á næstunni

Skráning sem viðtakandi útilokar ekki þátttöku í aðalrannsókninni þegar hún hefst, að uppfylltum þátttökuskilyrðum hennar.

VAL skoðar hvernig fólk tekur ákvarðanir í daglegu lífi. Í aðalrannsókninni verður meðal annars hægt að óska eftir persónulegri endurgjöf að rannsókn lokinni, sumir þátttakendur fá peningagreiðslur og þátttakendum kunna að bjóðast tímabilskort á afslætti. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér rannsóknina og fylgjast með opnun hennar á val.hi.is.

Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. Fyrirspurnum má beina til rannsoknin.val@hi.is.

""