Heimahöfn háskólakennslu opnuð formlega

Heimahöfn háskólakennslu, sem er samstarfsverkefni allra háskóla landsins og hefur það að markmiði að efla hæfni í háskólakennslu og styðja við faglega þróun kennara, var opnuð formlega af Loga Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mánudaginn 17. ágúst.
Markmið verkefnisins er að styðja við faglega þróun á sviði háskólakennslu með opnum starfsþróunarnámskeiðum á netinu, bæði á íslensku og ensku. Verkefnið er unnið með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ávarpar gesti málþingsins. MYND/Tryggvi Már Gunnarsson
Í tilefni opnunarinnar var haldið málþing þar sem fjallað var um mikilvægi kennsluþróunar í háskólum, alþjóðlega strauma á sviðinu og framtíðarsýn um samstarf og gæði í íslensku háskólakerfi. Meðal þeirra sem tóku til máls voru Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Guðrún Geirsdóttir, prófessor og fagstjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands, og Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar Háskólans á Akureyri, Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi við sama skóla, og John Baird kennsluráðgjafi í Háskólanum í Reykjavík.
Guðrún Geirsdóttir, prófessor og fagstjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands, var meðal þeirra sem flutti erindi á málþingi sem haldið var í tilefni Heimahafnar háskólakennslu MYND/Tryggvi Már Gunnarsson

Skýr vilji til aukins samstarfs
Í tengslum við málþingið tóku fundargestir, sem komu frá öllum háskólum landsins, þátt í rafrænni könnun um stöðu og framtíð kennsluþróunar í íslenskum háskólum. Niðurstöðurnar sýndu afgerandi samhljóða viðhorf meðal þátttakenda varðandi mikilvægi þess að efla kennsluþróun til að bæta gæði náms og kennslu og að þróuð verði samræmd nálgun á sviðinu milli háskóla.

Heimahöfn háskólakennslu er samstarfsverkefni allra háskóla landsins og hefur það að markmiði að efla hæfni í háskólakennslu og styðja við faglega þróun kennara. MYND/Tryggvi Már Gunnarsson
Þegar spurt var hvað myndi helst njóta góðs af auknu samstarfi háskóla nefndu flestir starfsþróun háskólakennara, sameiginleg úrræði og sérfræðiþekking og tengslanet og samfélög þvert á stofnanir. Í opnum svörum um mikilvægustu skrefin á næstu 12 mánuðum komu fram fjölbreyttar en samhljóma áherslur, þar á meðal aukið svigrúm kennara til að sinna kennsluþróun, tenging kennslu við launa- og framgangskerfi, formlegt samstarf háskóla, hugsanlega með aðkomu ráðuneytis, og áframhaldandi stuðningur við og innleiðing Heimahafnar. Þátttakendur lýstu jafnframt eindregnum vilja til samstarfs.
Nánari upplýsingar um Heimahöfn háskólakennslu og námsframboð verða birtar á næstu vikum.
