Háskólalestin á Sauðárkróki 16.-18. apríl

Vorið er komið og það þýðir bara eitt. Háskólalestin leggur af stað um landið með fjör og fræði og mun hún heimsækja tvo staði á næstu vikum. Fyrri áfangastaðurinn er Skagafjörður en þar verður nemendum og kennurum í sveitarfélaginu og íbúum svæðisins boðið upp á sannkallað vísindaævintýri dagana 16.-18. apríl þar sem fjölbreytt fræði verða kynnt á lifandi og aðgengilegan hátt, meðal annars í samstarfi við stofnanir í héraði.
Dagskrá Háskólalestarinnar hefst fimmtudaginn 16. apríl þegar boðið verður upp á kennarasmiðjur fyrir grunnskólakennara í Skagafirði þar sem áherslan er á að efla fagþróun og kynna nýjar hugmyndir fyrir skólastarfið.
Föstudaginn 17. apríl taka nemendur í 8.–10. bekk í Árskóla, Varmahlíðarskóla og Grunnskólanum austan Vatna þátt í spennandi námskeiðum hjá kennurum Háskólalestarinnar. Hver nemandi situr þrjú námskeið yfir daginn og í boði eru meðal annars námskeið í tilraunum í eðlisfræði, japönskum fræðum, sjúkraþjálfun, blaða- og fréttamennsku, skurðlækningum, stjörnufræði, hugrekki í hegðun, skapandi tæknismiðju, íþrótta- og heilsufræði, vísindum bleikjunnar og smíði fallbyssu með skotkeppni.
Laugardaginn 18. apríl kl. 11.00–14.00 verður Opið vísindahús í Árskóla en það er hluti af Sæluviku Skagfirðinga sem nú stendur yfir. Áhöfn Háskólalestarinnar býður fólk á öllum aldri hjartanlega velkomið í vísindagleði fyrir alla fjölskylduna. Gestir geta meðal annars prófað styrk sinn og hreyfigetu, kynnst japanskri menningu og origami, saumað í gervihúð líkt og skurðlæknar og fylgst með vatnseldflaugum skotið hátt upp í loftið.
Einnig verður boðið upp á hreyfiáskoranir með sjúkraþjálfara, fallbyssur í skotkeppni og tækifæri til að prófa að taka fréttaviðtöl. Þá geta gestir skoðað vélmenni og micro:bit, skapað með FabLab Sauðárkróki, kynnst fræðum Háskólans á Hólum og safnastarf og forleifar í fortíð, nútíð og framtíð með Byggðasafni Skagfirðinga.
Aðgangur er ókeypis og engin skráning nauðsynleg. Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að upplifa vísindin á lifandi og skemmtilegan hátt.
Í áhöfn Háskólalestarinnar er vísindafólk úr fjölbreyttum greinum Háskóla Íslands. Markmiðið er að gera vísindi sýnileg og spennandi fyrir fólk á öllum aldri og efla tengsl háskólans við landsbyggðina.
Háskólalestin hefur ferðast um landið frá árinu 2011 og m.a. hlotið Vísindamiðlunarverðlaun Rannís.
Nánari upplýsingar má finna á haskolalestin.hi.is og á Facebook-síðu Háskólalestarinnar.
