Skip to main content
21. maí 2026

Hæglæti í leikskólastarfi bætir félagsfærni, sköpun og leik

Afar vel sótt ráðstefna Að finna taktinn, um hæglæti í leikskólastarfi.

Á ráðstefnunni Að finna taktinn sem fram fór í Háskólabíó oýverið komu saman bæði alþjóðlegir fræðimenn og starfandi leikskólakennarar til að varpa ljósi á hæglæti í leikskólastarfi frá ólíkum sjónarhornum. 

Ráðstefnan var haldin í tengslum við þróunar- og rannsóknarverkefnið Stilla – hæglátt leikskólastarf, sem unnið hefur verið í samstarfi leikskóla og fræðimanna frá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og erlendum samstarfsaðilum. Verkefnið byggist á nánu samstarfi við vettvang og sameinar rannsóknir og þróunarstarf.

Markmiðið með ráðstefnunni var að miðla niðurstöðum verkefnisins og að opna fyrir víðtækari umræðu um tíma, gæði og fagmennsku í leikskólastarfi. „Vonin er að umræðan leiði til endurskoðunar á dagskipulagi og forgangsröðun í leikskólum og styðji við starf þar sem rými skapast fyrir tengsl, leik og merkingarbært nám barna. Til lengri tíma litið er markmiðið að hæglæti verði hluti af menningu leikskóla þar sem áhersla er lögð á gæði fremur en hraða og á upplifun barna fremur en einungis á skipulag,“ segir Anna Magnea, lektor við Menntavísindasvið HÍ, sem var ásamt Kristínu Dýrfjörð, dósent við Háskólann á Akureyri, verkefnastjóri Stillu sem unnið var með samrannsakendum innan leikskólanna og fræðimönnum frá USN háskólanum í Noregi.

Sigurður Guðmundsson tónlistamaður opnaði ráðstefnuna með söng og meðal fyrirlesara var Alison Clark, höfundur bókarinnar Slow knowledge and the unhurried child, sem fjallar um hæglátt leikskólastarf og fræðimenn sem tengja hæglæti við forystu, tengsl og daglegt starf í leikskólum. Þá sögðu fulltrúar íslenskra leikskóla frá reynslu sinni af þróunarverkefninu Stillu en hæglæti hefur verið innleitt í daglegt starf fjögurra leikskóla. Niðurstöður verkefnisins sýna meðal annars að hæglæti er fagleg og siðferðileg afstaða sem hefur áhrif á samskipti, skipulag og menningu leikskóla. Jafnframt leiða þær í ljós að þegar börn fá meiri tíma og rými eykst sjálfstjórn þeirra, félagsfærni og sköpun og leikur þeirra verður dýpri og merkingarbærari.

Hæglæti leið til að efla gæði, vellíðan og lýðræðislega þátttöku barna

„Hæglæti snýst í grunninn um að finna „réttan takt“ í starfi með börnum, ekki of hraðan en heldur ekki of hægan. Í hefðbundnu leikskólastarfi getur klukkan og skipulagið oft ráðið ferðinni en rannsóknir sýna að slíkt getur dregið úr flæði, sjálfræði og þátttöku barna. Hæglátt leikskólastarf leggur áherslu á að gefa börnum tíma til að sökkva sér í leik og könnun, hlusta á áhuga þeirra og fylgja honum og skapa samfellu í námi og tengslum. Þegar það tekst verður til meira jafnvægi í starfinu, meiri ró og sterkari tengsl milli barna og fullorðinna. Hæglæti er því leið til að efla gæði, vellíðan og lýðræðislega þátttöku barna í daglegu starfi,“ segir Anna Magnea.

Anna Magnea Hreinsdóttir, lektor við Menntavísindasvið MYND/Kristinn Ingvarsson.
MYND/Kristinn Ingvarsson.
MYND/Kristinn Ingvarsson.
MYND/Kristinn Ingvarsson.
MYND/Kristinn Ingvarsson.
MYND/Kristinn Ingvarsson.