Skip to main content
25. ágúst 2026

Greinasafn um samspil trúarlegra og veraldlegra þátta í bókmenntum

Greinasafn um samspil trúarlegra og veraldlegra þátta í bókmenntum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Út er komin bókin The Sacred and the Profane in premodern Icelandic literature, ca. 1500–1800 í ritstjórn Margrétar Eggertsdóttur, rannsóknarprófessors við Árnastofnun, Katelin Marit Parsons, lektors við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og Aðalheiðar Guðmundsdóttur, prófessors við sömu deild. Útgefandi er bókaforlagið De Gruyter.

Í bókinni eru tólf greinar byggðar á fyrirlestrum sem fluttir voru á ráðstefnu sem haldin var í Reykjavík árið 2022. Ráðstefnan var liður í rannsóknarverkefninu Hið heilaga og hið vanheilaga í íslenskum bókmenntum síðari alda sem styrkt var af Rannís á árunum 2021–2024. Viðfangsefni verkefnisins var að skoða samspilið milli trúarlegra og veraldlegra þátta í handritum og prentuðum bókmenntum á ýmsum tímabilum bókmenntasögunnar. Bókinni er skipt niður í þrjá hluta sem nefnast Constructing Literature, Between the Sacred and the Profane og Materiality and Mediality. Hún kemur út í ritröðinni The Northern Medieval World: On the margins of Europe.

Í bókinni eru tekin fyrir ólík og fjölbreytt bókmenntaverk og fjallað um viðtökur þeirra á tímabili í sögu Íslands sem lítið hefur verið rannsakað. Hin hefðbundna tvískipting texta í trúarlega og veraldlega er tekin til endurskoðunar í þeim tilgangi að nálgast verkin á heildstæðari hátt þannig að hægt sé að greina hið heilaga í hinu vanheilaga og öfugt. Tólf fræðimenn eru höfundar greinanna þar sem ýmsar bókmenntagreinar, svo sem þulur, rímur og sálmar, koma við sögu. Í inngangi bókarinnar er fjallað ítarlega um bókmenntalega og menningarlega þróun á Íslandi eftir 1500 um leið og gefin er innsýn í bókmenntaástand á Íslandi eftir siðaskipti, bæði hvaða mynd hefur verið dregin upp af því og hvernig það hefur verið túlkað.

Höfundar greina:

  • Haraldur Hreinsson
  • Katelin Marit Parsons
  • Alice Bower
  • Pétur Húni Björnsson
  • Natalie M. Van Deusen
  • Philip Lavender
  • Þórunn Sigurðardóttir
  • Margrét Eggertsdóttir
  • Aðalheiður Guðmundsdóttir
  • Ermenegilda Müller
  • Yelena Sesselja Helgadóttir
  • Lea D. Pokorny

Nánar um bókina á vefsíðu útgefanda.

Ritstjórar bókarinnar, þær Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, og Katelin Marit Parsons, lektor við sömu deild. Mynd: Sigurður Stefán Jónsson.