„Góður kennari hefur fáránlegan áhuga á því sem hann er að kenna“

Eftir mikla prófatörn hafa hlutirnir róast örlítið í Háskóli Íslands. Brautskráning er framundan, Háskóli unga fólksins er í undirbúningi og á sama tíma standa stúdentspróf yfir víða um land. Fjölmargir framhaldsskólanemar velta nú fyrir sér framtíðinni, skoða námsleiðir og reyna að finna út hvaða nám henti eigin áhuga og hæfileikum.
Að sögn Ársæls Más Arnarssonar, prófessors við HÍ, er það einmitt hluti af því sem gerir Háskóla Íslands sérstakan hversu fjölbreyttur skólinn er og hversu ólíkum þörfum hann getur mætt.
Í viðtali um Háskóla Íslands, hlutverk kennara og mikilvægi háskólamenntunar segir Ársæll að HÍ sameini sterka hefð, öflugt rannsóknastarf og lifandi samfélag nemenda og kennara. „Háskóli Íslands er auðvitað stærsti og elsti háskólinn í landinu og býður upp á langfjölbreyttasta námsframboðið. Það skiptir máli af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi eru nemendur ekkert alltaf hundrað prósent vissir um hvað þeir vilja gera þegar þeir eru komnir í háskóla. Ef þú skráir þig í Háskóla Íslands, þá hefurðu ótrúlega margar námsleiðir til að velja. Svo er það hitt, með því að vera með svona rosalega stóran skóla, þá geta nemendur svolítið sniðið námið að sínum áhuga.“
Þetta síðasta segir í raun miklu meira en margir átta sig á við fyrstu sýn. Sveigjanleikinn innan HÍ gerir nemendum kleift að móta námið að eigin markmiðum, tengja saman ólík fræðasvið og jafnvel byggja upp námsferil sem er sérsniðinn að þeirra styrkleikum og framtíðarsýn. Það er einn af helstu kostum stórs og fjölbreytts háskóla þar sem ólíkar greinar, rannsóknir og hugmyndir mætast á einum stað, í HÍ.
Ótrúleg upplifun að hefja nám í HÍ
Núna þegar margir eru að velta fyrir sér framtíðinni segir Ársæll Már Arnarson að hann muni vel eftir því þegar hann var sjálfur í sömu sporum. Hann segist enn muna daginn þegar hann steig í fyrsta sinn inn í Háskóli Íslands og að upplifunin hafi haft mikil áhrif á sig. „Alltaf þegar ég kom í háskólann þegar ég var stúdent, þá fannst mér þetta vera svolítið grand. Þetta var stór upplifun. Þetta er svo stór skóli. Maður veit að það er mikil saga og hér eru starfandi alveg ótrúlega flottir kennarar. Bestu vísindamenn landsins eru margir hverjir hér og já, flest allir eru hér. Svo eru líka bara ótrúlega flottir nemendur hér í HÍ sem er gaman að kenna. Þannig að þetta er allt svolítið stórt og magnað.“
Í svörum Ársæls Más má greina ákveðna virðingu fyrir bæði sögu skólans og því samfélagi sem þar hefur myndast. Hann talar ekki aðeins um byggingar eða námsleiðir heldur líka stemninguna, fólkið og tilfinninguna sem fylgir því að ganga inn í umhverfi þar sem rannsóknir, kennsla og metnaður eru í háskerpu á hverjum degi.
Öflugur kennari og skemmtilegur miðlari
Ársæll Már Arnarsson er enginn nýgræðingur þegar kemur að kennslu og hann nýtur mikilla vinsælda meðal nemenda sinna. Hann hefur um árabil verið áberandi í íslensku háskólasamfélagi, ekki bara út af því að hann er alltaf afar snyrtilega til fara og með einstaklega vel hnýttan bindishnút, heldur líka út hinu að hann er öflugur kennari, kraftmikill rannsakandi og vinsæll miðlari þekkingar í fjölmiðlum.
Ársæll er prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og hefur meðal annars rannsakað heilsu, líðan og félagslegt umhverfi barna og ungmenna. Áður en hann hóf störf við Háskóla Íslands starfaði hann við Háskólinn á Akureyri og hefur einnig reynslu úr atvinnulífinu. Sú blanda af fræðilegri dýpt og reynslu úr samfélagi og atvinnulífi hefur mótað nálgun hans bæði í rannsóknum og kennslu.
„Það skiptir rosalega miklu máli þegar maður er að kenna við háskóla að hafa nýjustu rannsóknir á hreinu, að maður sé með allar helstu nýjungar á takteinum. Háskólinn er mjög öflugur í rannsóknum og því eru kennarar hér alltaf að skoða það sem er nýjast og skiptir mestu máli,“ segir Ársæll. MYND/Kristinn Ingvarsson

Þau sem setið hafa í tímum hjá Ársæli segja hann lifandi í kennslu, skýran í framsetningu og með sterka nærveru. Nemendur hans hafa oft lýst honum sem kennara sem nái að gera flókin viðfangsefni aðgengileg án þess að einfalda þau um of. „Góður kennari hefur alveg fáránlegan áhuga á því sem hann er að kenna og alveg ótrúlega þörf fyrir að smita aðra af þeim áhuga. Góður kennari vill að nemendur sínir vaxi sem fagfólk og líka sem manneskjur. Tengslin á milli kennara og nemenda eru líka mjög góð hér í HÍ. Þau eru mjög sterk. Við kennararnir leggjum mikla áherslu á það að nemendur upplifi sig eins og þeir séu hluti af háskólanum, þeir séu velkomnir og að þeir geti talað við okkur um allt sem að snýr að náminu.”
Ársæll segir jafnframt sterka rannsóknamenningu skipta miklu máli fyrir gæði kennslunnar í HÍ. „Það skiptir rosalega miklu máli þegar maður er að kenna við háskóla að hafa nýjustu rannsóknir á hreinu, að maður sé með allar helstu nýjungar á takteinum. Háskólinn er mjög öflugur í rannsóknum og því eru kennarar hér alltaf að skoða það sem er nýjast og skiptir mestu máli.“
Háskóli með sterkar rætur en mjög nútímalegur
Í rannsóknum sínum hefur Ársæll Már Arnarsson lagt áherslu á málefni sem snerta daglegt líf fólks, sérstaklega ungs fólks, og tekið þátt í stórum alþjóðlegum rannsóknum á sviði lýðheilsu og hegðunar. Samhliða því hefur hann verið ötull talsmaður þess að háskólar eigi ekki aðeins að miðla þekkingu heldur einnig að efla gagnrýna hugsun, sjálfstæði og samfélagslega ábyrgð.
Þegar Ársæll er spurður hvort aldur Háskóli Íslands hafi áhrif á sýn fólks á skólann svarar hann því til að þrátt fyrir sterkar rætur og mikla sögu sé háskólinn síður en svo gamaldags. „Háskólinn byggir á mjög sterkri hefð og það er rosalega mikið í gangi hérna. Það alltaf eitthvað stórkostlegt í gangi, bæði fræðsla, rannsóknir, kennsla og nei!” segir hann og kveður fast að nei-inu, „þetta er alls ekki gamaldags. Þetta er mjög nýmóðins háskóli og við erum náttúrulega með alla nýjustu þekkingu hér inni á þessu svæði.“
Atvinnulífið veit að prófráður úr HÍ hafa ákveðinn gæðastimpil
Aðspurður um mikilvægi prófgráðu frá Háskóli Íslands fyrir atvinnulífið segir Ársæll traustið byggjast á reynslu atvinnulífsins og samfélagsins af skólanum í gegnum áratugina. „Það er náttúrulega þannig að flest sem eru úti í atvinnulífinu eru auðvitað menntuð í HÍ og vita alveg hvað liggur á bak við prófgráðuna. Fólk í atvinnulífinu veit alveg að við erum ekki að slá af neinum kröfum og það veit alveg að það er ákveðinn gæðastimpill á gráðu frá okkur, vegna þess að þetta fólk hefur bara reynsluna sjálft.“
Háskóli Íslands verður 115 ára þann 17. júní næstkomndi og Ársæll segir langlífi skólans endurspegla mikilvægi hans fyrir íslenskt samfélag.
„Ég held að skóli verði svona gamall vegna þess að hann skiptir máli fyrir samfélagið. Það er auðvitað þannig að háskólamenntun er ekki allt. Það er ekki allt fengið með háskólamenntun. En það er mjög margt sem er fengið með háskólamenntun. Á einn eða annan hátt þá er Háskóli Íslands uppspretta þekkingar, nýsköpunar og menningar á Íslandi. Þannig er það bara.“
