Fyrst til að brautskrást úr framhaldsnámi í leiðtogafærni, starfstengdu diplómanámi

Tímamót urðu föstudaginn 13. mars síðastliðinn þegar Hekla Björk Hólmarsdóttir varð fyrsti nemandinn til að ljúka tveggja ára framhaldsnámi í leiðtogafærni, starfstengdu diplómanámi við Deild heilsueflingar, tómstunda og íþrótta á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Fjölmenni kom saman til að fagna þessum áfanga með Heklu í Sögu.
Hér eru á ferðinni mikilvæg tímamót í þróun inngildandi háskólanáms á Íslandi en Hekla starfar í dag sem aðjúnkt við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði en hún er fyrst einstaklinga með þroskahömlun til að gera það. Fyrir það hlaut hún m.a. Múrbrjót Þroskahjálpar 2025 sem veittur er þeim aðilum sem hafa unnið markvert starf við að brjóta niður múra, efla mannréttindi og skapa jöfn tækifæri fyrir fatlað fólk í íslensku samfélagi.
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands hélt ávarp í upphafi brautskráningarinnar þar sem hún sagði m.a.: „Lokaverkefni Heklu er góður vitnisburður bæði um styrkleika og getu hennar sjálfrar og það hve miklu námið skiptir fyrir þroska og starfsþróun fólks með fötlun. Í verkefninu talar Hekla um það hve miklu máli skipti hana að kynnast fötluðum kennurum. Nú er hún sjálf í þeim hópi og verður vonandi mikilvæg og öflug fyrirmynd fyrir nemendur með fötlun og fordæmi um hverju er hægt að áorka.“
Því næst flutti Hekla erindið, Ólík sjónarmið - Háskóli fyrir öll, ásamt Andreu Þóreyju Sigurðardóttir og Hrafnhildi Ásu Sigurðardóttur meistaranemum í þroskaþjálfafræði. Þar á eftir fjallaði Hekla um lokaverkefni sitt, Draumar geta ræst, áður en eiginleg brautskráningarathöfn fór fram.
„Ég útskrifaðist fyrst úr tveggja ára diplómanámi 2023 og það var mikill áfangi fyrir mig. Eftir diplómanámið fékk ég tækifæri til að taka tvö aukaár í þróunarverkefni sem hét framhaldsnám í leiðtogafærni. Þar fékk ég að halda áfram að þroskast og mennta mig meira. Þótt verkefnið hafi ekki verið framlengt tek ég með mér dýrmæta reynslu. Þegar ég kláraði námið fékk ég starf við Háskóla Íslands sem aðjúnkt. Það er mér sérstaklega mikilvægt og ég er stolt af því tækifæri til að fá að vera hluti af háskólasamfélaginu og nýta það sem ég hef lært. Útskriftin er því ekki bara endapunktur heldur líka upphaf að nýjum kafla. Ég er stolt af vegferðinni minni, þakklát fyrir tækifærin og fólkið sem stóð með mér. Það er gaman að vinna með ykkur í háskólanum með það í huga að menntun eigi að vera raunverulegt tækifæri fyrir alla.“
Við óskum Heklu innilega til hamingju með brautskráninguna.








