Skip to main content
3. júní 2026

Frumkvöðlar framtíðarinnar verðlaunaðir á Nýsköpunarkeppni grunnskólanna

Frumkvöðlar framtíðarinnar verðlaunaðir á Nýsköpunarkeppni grunnskólanna - á vefsíðu Háskóla Íslands

Hugmynd að öryggiskerfi fyrir leiguhlaupahjól, þar sem hjálmur er tengdur hjólinu og hjólið fer ekki af stað nema hjálmurinn sé notaður, hlaut aðalverðlaun í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) 2026 en lokahóf keppninnar fór fram í húsakynnum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands á Sögu laugardaginn 30. maí. Fjölmörg verkefni voru verðlaunuð en þau sýna vel sköpunakraftinn sem býr í grunnskólanemum um allt land. 

Alls bárust rúmlega 500 hugmyndir frá nemendum í 5. – 7. bekk hvaðanæva af landinu í keppnina í ár. Af þeim voru 25 hugmyndir valdar til úrslita og tóku aðstandendur þeirra, alls 38 nemendur, þátt í vinnustofum og lokaviðburði NKG í Sögu dagana 28.-30. maí. Þar þróuðu nemendur hugmyndir sínar áfram, fengu leiðsögn sérfræðinga og undirbjuggu kynningar á verkefnum sínum. 

Lokahófið sjálft var hátíð nýsköpunar þar sem tónlist, dans, kynningar og verðlaunaafhending fléttuðust saman.

Dagskráin hófst með ávarpi Kolbrúnar Pálsdóttur, forseta Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, sem lagði áherslu á mikilvægi þess að skapa börnum vettvang þar sem hugmyndir þeirra fá að vaxa og verða sýnilegar.

Við sama tækifæri voru afhent hvatningarverðlaunin VILJI – Nýsköpunarkennari grunnskólanna 2026. Þau hlaut Drífa Hjördís Thorstensen, grunnskólakennari við Háaleitisskóla á Ásbrú, fyrir framúrskarandi framlag sitt til nýsköpunar í skólastarfi og fyrir að skapa nemendum sínum vettvang til að hugsa stórt, prófa sig áfram og láta hugmyndir sínar verða að veruleika.

Kolbrun og Drifa

Drífa Hjördís Thorstensen, grunnskólakennari við Háaleitisskóla á Ásbrú, er hér með viðurkenninguna og með henn á myndinni er Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ.

Fyrir hönd Mennta- og barnamálaráðuneytisins flutti Linda Heiðarsdóttir, skrifstofustjóri Skrifstofu skóla- og íþróttamála, ávarp og lagði áherslu á mikilvægi þess að hlúa að nýsköpun, frumkvæði og skapandi hugsun í íslensku skólastarfi.

Þátttakendur í úrslitum NKG létu ekki sitt eftir liggja á athöfninni og buðu meðal annars upp á tónlistar- og dansatriði og stuttar kynningar á verðlaunahugmyndum ársins, en alls voru veitt verðlaun í átta flokkum, þar á meðal aðalverðlaun keppninnar.

Lokahófið náði hápunkti þegar Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari Nýsköpunarkeppni grunnskólanna, flutti lokaávarp og afhenti aðalverðlaunin.

Yfirlit yfir verðlaunahafa og hugmyndir þeirra má finna hér að neðan.
 

Katrín Svala Ólafsdóttir og María Lilja Davíðsdóttir, nemendur í 6. bekk Víðistaðaskóla, hlutu aðalverðlaun Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og þær eru hér ásamt Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands og verndara keppninnar.

Aðalverðlaun NKG 2026
Katrín Svala Ólafsdóttir og María Lilja Davíðsdóttir, 6. bekk Víðistaðaskóla

Hjálmur á hlaupahjól
Öryggiskerfi fyrir leiguhlaupahjól þar sem hjálmur er tengdur hjólinu og hjólið fer ekki af stað nema hjálmurinn sé notaður.

Forritunarbikar NKG
Elma Georgsdóttir og Maya Teresa Kamallakharan, 5. bekk Fossvogsskóla
Maturinn minn

Leikjavætt app sem hjálpar börnum að velja hollan mat, skipuleggja nesti og draga úr matarsóun með umbunarkerfi og betri yfirsýn fyrir fjölskyldur.

Hönnunarbikar NKG og Hugverkastofu
Diðrik Nói Sigurjónsson, 6. bekk Djúpavogsskóla

Chip picker
3D-prentað verkfæri sem tekur upp snakk, núðlur og annan mat án þess að notandinn fái krydd eða fitu á fingurna.

Mannréttindabikar NKG og ÖBÍ
Hjördís Lilja Egilsdóttir og Stefania Szymanowska, 5. bekk Njarðvíkurskóla

Bókin ykkar
Lífleg og aðgengileg bók fyrir blinda þar sem efni er bæði áþreifanlegt og hljóðrænt og blindaletur verður hluti af upplifuninni.

Samfélagsbikar NKG
Guðlaug Sóley Jokumsen Bergman og Elvar Ólafsson, 6. bekk Víðistaðaskóla

Saltblásari
Blástursvél sem getur einnig tekið við salti og dreift því yfir götur og stíga þegar hálka myndast.

Tæknibikar NKG
Trausti Viðar Fjólmundsson og Jón Greipur Þorgilsson, 7. bekk Grunnskólans austan Vatna
Léttingarkefli

Kefli með rótor sem auðveldar bændum að taka niður girðingar með minni fyrirhöfn.

Umhverfisbikar NKG og ELKO
Fannar Tindur Jónsson, 5. bekk, Brúarárskóla
Plasthitarinn

Lausn sem hitar upp plastrusl og minnkar umfang þess fyrir heimili.

Ræðubikar JCI
Kristín Kata Sigurbjörnsdóttir, 7. bekk Snælandsskóla
Bdýnan

Dýna sem er í laginu eins og B, með holur fyrir brjóst og bumbu, líka hentug fyrir óléttar konur.

Allir verðlaunahafar fengu viðurkenningu og 20.000 króna gjafakort frá ELKO sem styrkti keppnina með rausnarlegum hætti. Handarhafa aðalverðlauna NKG 2026 hlutu auk þess 40.000 króna aðalverðlaun.

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna leggur jafnframt ríka áherslu á að fagna þátttöku og framlagi allra barna. Því fengu allir nemendur sem komust í úrslit og tóku þátt í vinnustofum NKG sérstaka viðurkenningu og 15.000 króna hvatningarverðlaun frá NKG sem þakkarvott fyrir árangur þeirra, vinnu og hugrekki.

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna hefur nú verið haldin í 35 ár og sýnir ár eftir ár hvað gerist þegar börn fá tækifæri til að spyrja spurninga, finna lausnir og skapa eitthvað nýtt.

Myndir frá lokahófi Nýsköpunarkeppni grunnskólanna má finna á vef keppninnar. Þar má einnig sjá myndir frá vinnustofum sem fram fóru 28. og 29. maí.

Þátttakendur í úrslitum Nýsköpunarkeppni grunnskólanna ásamt forsetahjónunum, fulltrúa mennta- og barnamálaráðuneytisins, rektor HÍ, forseta Menntavísindasviðs og aðstandendum keppninnar á Menntavísindasviði HÍ.