Fótgímur, slímgumpar og annað góðgæti í Heiðmörk

Sveppatíminn er genginn í garð og þá er fátt skemmtilegra en að halda í Heiðmörk með körfu í hönd og kunnáttufólk sér við hlið. Háskóli Íslands og Ferðafélag barnanna bjóða þriðjudaginn 25. ágúst til hinnar árlegu sveppaferðar þar sem leitað verður að matsveppum og öðrum forvitnilegum íbúum í skógarbotninum.
Mæting er kl. 17 á Borgarstjóraplaninu í Heiðmörk og tekur ferðin um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis og ekkert þarf að panta – bara mæta.
Sveppir leynast víða í íslenskri náttúru en skóglendi eins og Heiðmörk er sannkallað kjörlendi þeirra. Sumir eru herramannsmatur, aðrir síður lystugir og enn aðrir beinlínis eitraðir. Það borgar sig því að vita hvað fer í körfuna.
Þar koma til sögunnar þeir Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands, og Ólafur Patrick Ólafsson, líffræðingur og háskólakennari. Með þeim verður hópur nema í líffræði við HÍ sem aðstoðar þátttakendur við leitina og greiningu sveppanna, auk fararstjóra frá Ferðafélagi barnanna.

Ólafur Patrick Ólafsson, líffræðingur og háskólakennari, og Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands, leiða gönguna.
Má bjóða þér slímgump?
Íslenskir sveppir bera sumir nöfn sem hljóma kannski ekki eins og augljós hvatning fyrir pönnuna eða diskinn. Fótgíma og slímgumpur eru þar frábær dæmi en hvor tveggja telst þó til góðra matsveppa. Þetta segir manni það að sveppir hafa auðvitað ekki ráðið nöfnum sínum og hvað þá kokkarnir. Gulltoppa er hins vegar fallegt nafn, sem einhverjum gæti jafnvel þótt girnilegt en... „gulltoppa er alveg eitruð og fær því að standa óáreitt,“ segir Gísli Már og hleypir í brúnirnar.
„Um 2.100 tegundir sveppa eru skráðar á Íslandi og á hverju ári bætast nýjar tegundir við,“ segir Gísli Már. Aðeins lítill hluti þessa mikla fjölbreytileika ratar þó á matarborðið og því er mikilvægt að vera alveg viss um tegundina áður en sveppurinn fer á pönnuna. Aldrei er að vita nema að nýjar tegundir á Íslandi verði uppgötvaðar í ferðinni á þriðjudag.
Í ferðinni verður ekki aðeins tínt heldur fræðast þátttakendur um lífríki sveppanna, hvernig þekkja má helstu matsveppi og hvernig best sé að geyma og matreiða fenginn.
Sveppaferðin er hluti af Með fróðleik í fararnesti, samstarfi Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands sem hófst á aldarafmæli Háskólans árið 2011 og hlaut Vísindamiðlunarverðlaun Rannís árið 2023.
Þátttakendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka með sér sveppabækur og ílát undir fenginn.
Verið hjartanlega velkomin í Heiðmörk með HÍ og FÍ!
