Skip to main content
15. apríl 2026

Fjölþjóðlegur hópur tók þátt í Háskólahlaupinu

Fjölþjóðlegur hópur tók þátt í Háskólahlaupinu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Á annað hundrað nemendur og starfsmenn létu ekki smá vorvætu hafa áhrif á sig og tóku á rás í Háskólahlaupinu þriðjudaginn 14. apríl. Þetta var í 15. sinn sem hlaupið er haldið með núverandi fyrirkomulagi.

Markmið Háskólahlaupsins er bæði að leiða saman nemendur og starfsfólk í skemmtilegum viðburði í og við háskólasvæðið og stuðla að bættri heilsu háskólafólks. Umsjón með hlaupinu var í höndum Markaðs- og samskiptasviðs og Mannauðssviðs skólans.

Líkt og fyrri ár stóð valið á milli tveggja vegalengda, 3 km og 7 km. Þriggja kílómetra hlaupaleiðin lá m.a. meðfram Suðurgötu, út að Reykjavíkurflugvelli og meðfram friðlandinu í Vatnsmýri. Sjö kílómetra hlaupaleiðin lá með fram Suðurgötu, út á Ægisíðu og til baka með fram sjónum og umhverfis Skerjafjörð, út að Reykjavíkurflugvelli og með fram friðlandinu í Vatnsmýri.

Það var Guðni T. Jóhannesson, prófessor og fyrrverandi forseti Íslands, sem er virkur hlaupari, sem ræsti þátttakendur af stað en hann var meðal þeirra sem tóku þátt í hlaupinu. Veður var blautt og nokkur vindur en ekki var annað að sjá en að þátttakendur nytu sín vel í hlaupinu. Alls voru 114 manns skráð til leiks og óhætt er að segja að hópurinn hafi verið fjölþjóðlegur því þátttakendur voru frá 26 þjóðlöndum.

Veitt voru verðlaun til þeirra sem komu fyrst í mark á báðum vegalengdum. Þau eru:

thrir km konur

3 km - konur
1. sæti - Mae Chemin
2. sæti - Bryndís Reynisdóttir
3. sæti - Caroline Planche

thrir km karlar

3 km - karlar
1. sæti - Guðmundur Ásgeir Guðmundsson
2. sæti - Tom Winder
3. sæti - Ísak Þór Place 

sjo km konur

7 km - konur
1. sæti - Maria Langer
2. sæti - Camille Delagarde
3. sæti - Aurélie De Bernandy De Sigoyer

 sjo km karlar

7 km - karlar
1. sæti Finnur Björnsson
2. sæti Eduardo Solana del Fresno
3. sæti Kári Steinn Kjartansson

Heildarúrslit Háskólahlaupsins má finna á vef Tímatöku.net.

Háskóli Íslands þakkar þeim stóra hópi sem tók þátt í hlaupinu kærlega fyrir daginn!

Fleiri myndir Kristins Ingvarssonar má sjá hér að neðan.

Hlauparar á ferð