Fjölmörg tækifæri til að efla tengslanetið á Atvinnudögum HÍ

Tækifæri til nýsköpunar fyrir nema, vettvangsferðir í fyrirtæki, aðstoð við gerð ferilskrár, atvinnutækifæri fyrir nýja doktora, spjall við reynslumikið fólk úr atvinnulífi og rabb við fulltrúa frá ráðningarstofum og atvinnumiðlunum er meðal þess sem í boði verður á Atvinnudögum Háskóla Íslands sem fram fara 16.-20. febrúar.
Atvinnudagar eru árviss viðburður í febrúar í Háskóla Íslands og að þeim standa Nemendaráðgjöf HÍ, Tengslatorg HÍ, Fjármála- og atvinnulífsnefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands, Miðstöð framhaldsnáms, Vísindagarðar HÍ og KLAK – Icelandic Startups. Markmið daganna er að varpa ljósi á starfsþróun nemenda meðan á háskólanámi stendur ástamt því að búa þau undir þátttöku í atvinnulífi. Eflaust eru mörg þessa dagana að horfa í kringum sig í leit að spennandi atvinnutækifærum.
Kennarar skólans eru jafnframt hvattir til að taka þátt í dagskrá Atvinnudaga með því að draga fram í kennslustundum hvernig sú hæfni sem nemendur öðlast í sínu námi getur nýst þeim í atvinnulífinu.
Dagskrá Atvinnudaga hefst með opnunarviðburði í Mýrinni, samfélagi frumkvöðla, í Grósku á Vísindagörðum mánudaginn 16. febrúar kl. 16-18. Yfirskrift viðburðarins er Námsmenn og nýsköpun – brúum bilið og er hann tvískiptur. Fyrri hlutinn fer fram í Mýrinni í Grósku þar sem Silja Bára R. Ómarsdóttir opnar Atvinnudaga, fulltrúar Vísindagarða, KLAK - Icelandic Startups og Nýsköpunarnefndar SHÍ kynna tækifæri til nýsköpunar og tveir nemendur HÍ segja frá reynslu sinni af nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi. Einnig verða pallborðsumræður með þátttöku aðila innan og utan Háskóla Íslands. Seinni hluti viðburðarins fer fram í göngugötunni í Grósku þar sem sprotafyrirtæki kynna starfsemi sína fyrir nemendum en þar gefst tilvalið tækifæri til tengslamyndunar og mögulega atvinnuleitar.
Þriðjudaginn 17. febrúar stendur Fjármála- og atvinnulífsnefnd SHÍ fyrir viðburði á Litla torgi í hádeginu þar sem Björn Berg, sjálfstæður fyrirlesari og ráðgjafi á sviði persónulegra fjármála, fer yfir það hvernig fólk getur gert það betra fjárhagslega.
Nýjung í ár er viðburðurinn Fáðu þér sæti! sem verður á Háskólatorgi í hádeginu miðvikudaginn 18. febrúar. Þar gefst nemendum færi á að setjast niður með brautskráðum stúdentum og Háskólavinum yfir kaffi og kleinu og ræða reynslu af vinnumarkaði og fá ýmis góð ráð hvað varðar að skapa starfsferil. Þennan dag verður jafnframt boðið upp á vettvangsferð fyrir stúdenta hjá Orku náttúrunnar milli kl. 15 og 16 á Bæjarhálsi 1. Skráning er nauðsynleg.
Fimmtudaginn 19. febrúar verða fulltrúar frá fjölmörgum ráðningarskrifstofum og atvinnumiðlunum á Háskólatorgi milli kl. 11:45 og 13:00 og rabba við nemendur um atvinnutækifæri og leiðir til þess að koma sér á framfæri á vinnumarkaði. Þar gefst enn og aftur tækifæri til að dýpka tengslanetið. Þennan dag býður Alvotech, Sæmundargötu 15, nemendum í heimsókn frá klukkan 16:00 til 18:00. Nánari upplýsingar um skráningu er að finna í dagskrá Atvinnudaga.
Í vikunni býður Nemendaráðgjöf HÍ nemendum enn fremur upp á vinnustofur á íslensku og ensku um hvernig best er að undirbúa atvinnuumsókn með góðri ferilskrá og kynningarbréfi. Þá stendur Miðstöð framhaldsnáms fyrir þremur viðburðum þar sem farið er yfir lykilinn að akademískum ferli og tækifæri fólks með doktorsgráður í atvinnulífi. Meðal þátttakenda í viðburðunum er reynslumikið fólk innan og utan háskólans.
Dagskrá Atvinnudaga er opin öllum nemendum Háskólans og hægt er að kynna sér nánari dagskrá þeirra á vef Tengslatorgs Háskóla Íslands.
