Skip to main content
16. júní 2026

Fjölmenni á fundi á heimsdegi hafsins

Fjölmenn á fundi á heimsdegi hafsins - á vefsíðu Háskóla Íslands

Áhrif breytinga á veltihringrás Atlantshafsins (AMOC), staða Íslands í verndun og sjálfbærri nýtingu hafsins og framtíð hafsins á tímum aukinna alþjóðlegra áskorana var meðal þess sem var til umfjöllunar á málþingi sem utanríkisráðuneytið og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands stóðu fyrir í Björtuloftum í Hörpu í tilefni af heimsdegi hafsins (e. World Oceans Day) þann 8. júní. Upptaka af málþinginu er nú aðgengileg fyrir áhugasöm.

Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 2008 að tilnefna 8. júní ár hvert sem Heimsdag hafsins til að minna á mikilvægi hafsins fyrir þjóðir heims og hvetja til aukinnar vitundar um nauðsyn verndunar þess. Hafið hefur ávallt verið undirstaða íslensks samfélags og efnahags og Íslendingar hafa því um áratugaskeið lagt áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda hafsins, verndun hafsvæða og réttindi strandríkja. Á sama tíma hafa alþjóðlegir samningar og samstarf um málefni hafsins aldrei skipt meira máli en nú.

Málþingið var tvískipt. Annars vegar var farið yfir málefni hafsins á alþjóðavettvangi og hins vegar fjallað um mikilvægi verndunar hafsins og sjálfbærrar nýtingar þess fyrir Ísland sem hafríki.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra opnaði málþingið og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra flutti lokaorð en auk þeirra héldu sérfræðingar úr ráðuneytum, stofnunum og frá félagasamtökum erindi. Þá kynntu nemendur í 10. bekk sjónarmið ungs fólks um hafið og verkefni sem þau höfðu unnið og voru til sýnis á viðburðinum. 

Hægt er að sjá myndir Kristins Ingvarssonar frá málþinginu hér að neðan.

Nánari dagskrá málþingsins má finna á vef HÍ og upptaka af því er aðgengileg hér (viðburðurinn byrjar á 22. mínútu).
 

Gestir á viðburðinum