Fjölbreyttar raddir í háskólum í brennidepli

Nýverið kom út bókin Partizipative Lehre: Kritische Fragen an neue Entwicklungen im Kontext inklusiver Hochschule (Þátttökukennsla: Gagnrýnar spurningar um nýja þróun í samhengi við inngildandi háskóla). Meðal höfunda er Ragnar Smára, starfsmaður kennsluskrifstofu Menntavísindasviðs, sem skrifaði kafla í samstarfi við þýskt samstarfsfólk.
Kaflinn ber heitið Die Vielfalt der Stimmen an Universitäten: Eine kritische Reflexion über Repräsentation aus der Perspektive von partizipativ Lehrenden in Island und Deutschland og fjallar um fjölbreytileika radda innan háskóla og mikilvægi samvinnu ólíkra hópa í kennslu og rannsóknum.
Í kaflanum deilir Ragnar meðal annars reynslu sinni af kennslu og þátttöku í rannsóknarteymum við Háskóla Íslands. Eitt af meginviðfangsefnum kaflans er hvernig háskólar geti skapað raunveruleg tækifæri fyrir jaðarsetta hópa til að taka þátt í að móta stefnu og starfsemi skólanna og þannig stuðlað að inngildandi háskólasamfélagi þar sem tekið er mark á fjölbreyttum sjónarmiðum.
