Finnur Breki Bjarnason útskrifast með einstakan árangur í hagfræði

Finnur Breki Bjarnason útskrifaðist með ágætiseinkunn frá Hagfræðideild Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands laugardaginn 13. júní. Árangur hans er einstakur, en hann útskrifast með hæstu einkunn sem skráð hefur verið í hagfræði frá upphafi tölvukerfis Háskóla Íslands árið 1980.
Finnur er 23 ára Kópavogsbúi en í grunninn Vesturbæingur þar sem hann lauk grunnskólagöngu sinni. Hann hefur mikinn áhuga á tónlist, sérstaklega íslensku tónlistarsenunni, sem hefur veitt honum innblástur í gegnum námið.
Finnur hóf háskólanám í verkfræði en skipti yfir í hagfræði eftir eitt ár. „Mér leist vel á hagfræði þar sem hún nýtir bæði félagsfræðilega vinkla og stærðfræði til þess að komast að niðurstöðum um hin ýmsu málefni sem snerta okkur öll,“ segir hann.
Hann segir mikilvægt að finna nám sem maður hefur raunverulegan áhuga á og hika ekki við að skipta um stefnu ef áhuginn er ekki til staðar. „Það er ekkert mál að vera góður í einhverju ef maður hefur gaman af því sem maður er að gera.“
Það sem stendur helst upp úr eftir þrjú ár í hagfræði eru tengslin við samnemendur og kennara. Finnur segir Hagfræðideildina vera frekar litla deild innan Háskóla Íslands og að það hafi skapað sterkt samband milli nemenda og kennara. Samheldnin í nemendahópnum hafi verið mikil og alltaf auðvelt að leita til kennara og samnemenda.
Honum fannst prófatarnirnar mest krefjandi en segir lykilinn hafa verið að mæta vel í tíma og sinna náminu jafnt og þétt yfir önnina. Þá varð prófatíðin frekar upprifjun á efni sem hann hafði þegar unnið með, í stað þess að þurfa að læra nýja hluti rétt fyrir próf.
Aðspurður um námsaðferðir segir Finnur að honum hafi fundist best að læra uppi í skóla með samnemendum sínum — sérstaklega í stofu O-301. „Það kom einhver andi yfir mann þar,“ segir hann. Hann leggur einnig áherslu á mikilvægi þess að forgangsraða tíma eftir því hvaða áfangar eru mest krefjandi.
Félagslífið í hagfræðinni var einnig mikilvægur hluti af námsárunum. Finnur segir nemendafélagið hafa staðið fyrir góðum viðburðum sem gáfu nemendum tækifæri til að kúpla sig út úr náminu og kynnast hvert öðru á öðrum vettvangi.
Finnur er sérstaklega stoltur af því að hafa tekið ákvörðun um að skipta yfir í hagfræði og segir það hafa reynst frábær ákvörðun. Hann er einnig stoltur af lokaritgerðinni sinni.
Í sumar tekur við sumarstarf hjá Seðlabanka Íslands. Að því loknu stefnir Finnur á að starfa á vinnumarkaði í eitt til tvö ár til að öðlast reynslu áður en hann heldur mögulega út í frekara nám.
Tónlistin hefur alltaf skipað stóran sess í lífi Finns en hann er með framhaldspróf í klassískum gítarleik. Hann segir tónlistarnámið hafa kennt sér vandvirkni og einbeitingu sem hafi nýst vel í hagfræðináminu. „Það er alltaf gott að geta gripið í gítarinn,“ segir hann.
Samnemandi Finns, Björn Viktor, segir árangurinn svo sannarlega verðskuldaðan. „Ég hef aldrei séð neinn leggja jafn hart á sig þegar kemur að námi og má með sanni segja að það sé ekkert þak á þeim draumum sem hann hefur ef áhuginn verður alltaf til staðar.“
Til hamingju með einstakan árangur, Finnur Breki!
