Skip to main content
25. febrúar 2026

Fimm rannsóknarverkefni á Menntavísindasviði hlutu styrk úr Menntarannsóknasjóði

Fimm rannsóknarverkefni á Menntavísindasviði hlutu styrk úr Menntarannsóknasjóði  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Fimm fjölbreytt rannsóknarverkefni á Menntavísindasviði hlutu styrk úr Menntarannsóknasjóði. Spunagreind, efling leiðsagnar og ráðgjafar við nám og kennslu, stafræn tækni í lífi barna, menntun til hnattrænnar borgaravitundar og þáttaka framhaldsskólans í lýðræðissamfélagi koma við sögu í rannsóknum fimm styrkhafa Menntarannsóknarsjóðs en heildarupphæð styrkja er 148.5 m.kr.

Eftirfarandi verkefni hlutu styrk að upphæð 29,7 m.kr. hvert:

  • Guðrún Ragnarsdóttir, prófessor við Menntavísindasviði HÍ: Að efla nám og kennslu með markvissri leiðsögn og ráðgjöf: Heildstæð íhlutunarrannsókn í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
  • Hannes Ottósson, lektor við Menntavísindasvið HÍ: Framtíð grunnskóla á Íslandi á tímum spunagreindar: Athafnakostir, læsi og hæfni kennara.
  • Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ: Stafræn tækni í lífi barna (STÍL).
  • Eva Harðardóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ: Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum: Efling náms- og félagsumhverfis með þátttöku kennara og nemenda.
  • Valgerður S. Bjarnadóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ: Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana: Að virkja gagnrýna hugsun og ábyrga þátttöku í lýðræðissamfélagi.

Markmið sjóðsins er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu.
Úthlutunarnefnd skipuð fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytis, Kennarasambands Íslands, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samstarfsnefndar háskólastigsins mat umsóknir og gerði tillögu til mennta- og barnamálaráðherra um styrki.

Styrkhöfum er óskað innilega til hamingju!

Hannes Ottósson, Guðrún Ragnarsdóttir, Eva Harðardóttir, Sara Margrét Ólafsdótitr og Valgerður S. Bjarnadóttir.