Skip to main content
18. maí 2026

Arnaldur Sölvi verður formaður fjármálaráðs

Silja Bára og Arnaldur

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Arnald Sölva Kristjánsson, lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands, formann fjármálaráðs. Daði Már og Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu á föstudag samkomulag um umgjörð á starfsemi ráðsins og að formennska í ráðinu teljist hluti af akademísku starfi Arnaldar Sölva.

Með samkomulaginu er tryggt að Háskóli Íslands styðji við þann hluta starfs Arnaldar Sölva sem tengist starfi fjármálaráðs ásamt því að útvega honum aðstöðu til að sinna störfum sínum. Markmið samkomulagsins er að skapa faglega umgjörð um starfsemi ráðsins. „Fjármálaráð gegnir mikilvægu hlutverki í að veita ríkinu aðhald. Þessi breyting styrkir stofnanaumgjörð ráðsins og eflir á sama tíma burði Hagfræðideildar Háskóla Íslands til rannsókna í opinberum fjármálum,“ segir Daði Már.

Fjármálaráði er ætlað að tryggja að fram fari hlutlægt mat á stefnumörkun í opinberum fjármálum. Það starfar samkvæmt 13. gr. laga um opinber fjármál og er sjálfstætt í störfum sínum. Hlutverk þess er að leggja mat á hvort fimm ára fjármálastefna og fjármálaáætlun fylgi þeim grunngildum sem lög um opinber fjármál kveða á um.

Formaður fjármálaráðs er skipaður til fimm ára í senn af fjármála- og efnahagsráðherra að fenginni tilnefningu frá forsætisráðherra. Arnaldur Sölvi hefur setið í fjármálaráði frá febrúar 2023 og gegndi varaformennsku í ráðinu. „Þetta er spennandi tækifæri til að móta og þróa vinnu fjármálaráðs enn frekar en þessar breytingar stuðla að því að rannsóknir innan Háskóla Íslands nýtist sem allra best í starfi fjármálsráðs og í þágu íslensks samfélags,“ segir Arnaldur Sölvi.
 

Birgir Þór Runólfsson, forseti hagfræðideildar HÍ, Magnús Þór Torfason, forseti Félagsvísindasviðs HÍ, Arnaldur Sölvi Kristjánsson, nýr formaður fjármálaráðs og lektor við hagfræðisdeild HÍ, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.