25. mars 2026
Appelsínugul veðurviðvörun

Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sendi meðfylgjandi tilkynningu til stúdenta og starfsfólks í dag:
„Kæru stúdentar og starfsfólk Háskóla Íslands.
Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið til kl. 13 á morgun, fimmtudag, og er spáð suðaustan stormi og stórhríð með slæmum akstursskilyrðum og samgöngutruflunum.
Starfsfólk er því hvatt til að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu og vinna heiman frá ef þess er kostur.
Kennarar eru beðnir um að meta hvort þeir geti fjarkennt og að upplýsa nemendur um það.
Jafnframt er fólk hvatt til að fylgjast með veðurfréttum í fyrramálið og meta stöðuna.
Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor“
