Alþingi samþykkir háskólasamstæðu Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum

Alþingi hefur samþykkt frumvarp um háskólasamstæður sem felur í sér að Háskóli Íslands og Hólaskóli – Háskólinn á Hólum mega sameinast undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands sem tekur formlega til starfa 1. júlí næstkomandi. Með samþykkt laganna verður Háskóli Íslands samstæðuháskóli en Háskólinn á Hólum starfar sem aðildarháskóli undir heitinu Háskóli Íslands á Hólum.
Lögin öðlast gildi 1. júlí 2026 og markar samþykkt þeirra tímamót í íslensku háskólastarfi. Markmiðið með háskólasamstæðunni er að efla samstarf háskólanna tveggja, styrkja rannsóknir, kennslu og stoðþjónustu og skapa aukin tækifæri til þverfræðilegs samstarfs og þróunar háskólastarfs um land allt.
Frumvarpið að lögunum byggist á frumkvæði Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum og á umfangsmikilli undirbúningsvinnu sem staðið hefur yfir undanfarin ár. Í greinargerð og nefndarálitum Alþingis er lögð áhersla á að breytingarnar séu ætlaðar til að efla sérstaklega stöðu Háskólans á Hólum sem sérhæfðs háskóla á landsbyggðinni og um leið styrkja Háskóla Íslands sem leiðandi rannsóknaháskóla hér á landi.
Stórt skref í málefnum háskóla á Íslandi
„Nú er stigið stórt skref í málefnum háskóla á Íslandi með mótun fyrstu háskólasamstæðu landsins. Í samstæðunni felast tækifæri til að einfalda og styrkja háskólakerfið, endurskoða og auka námsframboð og efla háskólamenntun og tengsl atvinnulíf um allt land. Ég þakka Hólmfríði Sveinsdóttur, rektor Háskólans á Hólum, og Jóni Atla Benediktssyni, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, fyrir frumkvæði þeirra og framlag til þessa verkefnis og öllu því frábæra starfsfólki beggja skóla sem hefur unnið hörðum höndum að því að gera samstæðuna að veruleika,“ segir Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor hinnar nýju háskólasamstæðu.
Samkvæmt lögunum verður Háskóli Íslands á Hólum áfram sjálfstæður aðildarháskóli innan samstæðunnar með sérstaka stöðu sem að mörgu leyti verður sambærileg stöðu fræðasviða innan Háskóla Íslands. Núverandi rektorsembætti Háskólans á Hólum breytist í forseta Háskóla Íslands á Hólum og verður sérstök stjórn yfir skólanum. Yfir samstæðunni verður einn háskólarektor og eitt háskólaráð en stofnað verður samstarfsráð sem fer með mikilvægt hlutverk í stefnumótun og ákvörðunum um þróun náms, kennslu og rannsókna innan aðildarháskólans. Með því er meðal annars leitast við að tryggja sjálfstæði aðildarháskólans og áhrif hans á lykilákvarðanir sem varða starfsemi hans og framtíð. Ákvarðanir um grundvallarbreytingar á starfsemi og námsskipan aðildarháskóla verða ekki teknar nema með einróma samþykki í samstarfsráði.
Eflir háskólastarf á landsbyggðinni
„Ég er gríðarlega ánægð með að Alþingi Íslendinga hafi samþykkt frumvarp sem heimilar háskólum að sameinast undir hatti háskólasamstæðu. Slíkar samstæður hafa verið myndaðar víðs vegar um heiminn í þeim tilgangi að efla háskólastarf en ekki síður byggðirnar þar sem minni háskólar starfa. Háskólar starfa í alþjóðlegu umhverfi þar sem rík áhersla er á gæði náms og rannsókna og mikil samkeppni er um starfsfólk, nemendur og fjármagn. Háskólinn á Hólum stendur á sterkum faglegum grunni og við skólann eru fræðasvið sem er ekki að finna við aðra íslenska háskóla og eru mikilvæg fyrir framtíð Íslands. Að ganga inn í háskólasamstæðu með Háskóla Íslands og öðlast þannig aðgang að því öfluga stoðkerfi sem þar hefur verið byggt upp í kringum nám og rannsóknir er mikill styrkur fyrir Háskólann á Hólum. Það ásamt uppbyggingu á sérhæfðu kennsluhúsnæði á Sauðárkróki og á Hólum, sem stjórnvöld hyggjast ráðast í, mun gera Háskóla Íslands á Hólum kleift að tryggja áframhaldandi eflingu á hágæðanámi og rannsóknum á mikilvægum fræðasviðum sem ekki síst skipta landsbyggðirnar máli,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir, fráfarandi rektor Háskólans á Hólum.
Í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir að Háskóli Íslands taki við eignum, skuldbindingum og starfsemi Háskólans á Hólum frá 1. júlí 2026. Nemendur og starfsfólk Háskólans á Hólum mun flytjast yfir til Háskóla Íslands þann 1. júlí nk. samkvæmt ákvæðum laganna en núverandi nemendur við Háskólann á Hólum munu halda rétti sínum til að ljúka námi samkvæmt gildandi námsleiðum. Þeir nemendur sem hefja nám við Háskóla Íslands á Hólum í haust gera það einnig.
Höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknasetra HÍ í Skagafjörð
Sérstök áhersla er lögð á að styrkja rannsóknastarf og háskólamenntun á landsbyggðinni. Þannig liggur fyrir að höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands verða fluttar í Skagafjörð og eflast þannig enn frekar tengsl rannsókna, háskólastarfs og samfélaga víða um land, en undir stofnunina heyra 12 rannsóknasetur sem finna má í öllum landsfjórðungum.
„Þetta er mikið fagnaðarefni fyrir okkur við Háskólann á Hólum. Samlegðarkraftur þessara tveggja stofnana mun efla háskólastarf og atvinnulíf á landsbyggðinni til muna. Mig langar að þakka því góða fólki innan skólanna beggja, stjórnvöldum en líka sveitarstjórnarfólki í Skagafirði og öðrum velunnurum, sem lagt hafa hönd á plóg í þessu mikilvæga verkefna fyrir samstarfið við að gera háskólasamstæðuna að veruleika,“ segir Hólmfríður enn fremur.
Samþykkt laganna skapar nýjan lagaramma fyrir samstarf háskóla á Íslandi og opnar jafnframt möguleika á frekari samvinnu háskóla undir merkjum háskólasamstæðna í framtíðinni þar sem áhersla er lögð á að háskólar innan samstæðunnar eflist en um leið haldi sérstöðu sinni.
Á upplýsingasíðu sem sett var á laggirnar í tengslum við myndun háskólasamstæðunnar er að finna ýmsar upplýsingar um hana, þar á meðal svör við spurningum sem snerta starfsfólk og stúdenta.
