Á Menntavísindasviði brautskráðust 670 kandídatar

Brautskráning frá Menntavísindasviði HÍ og tæplega 1700 umsóknir bárust fyrir haustmisseri 2026. Laugardaginn 13. júní síðastliðinn brautskráði Háskóli Íslands nærri 2.700 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi og brautskráðust 670 kandídatar frá Menntavísindasviði.Fjórar deildir tilheyra Menntavísindasviði og var skipting kandítata með eftirfarandi hætti:
- 189 brautskráðust frá Deild faggreinakennslu
- 94 brautskráðust frá Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda
- 192 brautskráðust frá Deild kennslu- og menntunarfræði
- 195 brautskráðust frá Deild menntunar og margbreytileika
Þess má geta aðá Menntavísindasviði brautskráðust 231 úr framhaldsnámi, 41 með viðbótardiplómu, 93 með viðbótarpróf á meistarastigi, 225 úr grunnnámi, 10 með grunndiplómu í starfstengdu námi fyrir fólk með þroskahömlun og 69 með grunndiplómu.
Aukning hefur verið í kennaranám undanfarin ár og brautskráðust 261 með leyfisbréf sem kennari:
- 51 brautskráðist með leyfisbréf úr leikskólakennarafræði
- 52 brautskráðust með leyfisbréf í kennslu yngri barna
- 92 brautskráðir með leyfisbréf sem kennari frá Deild faggreinakennslu
- 47 brautskráðir með leyfisbréf í Menntun framhaldsskólakennara
- 19 brautskráðust með leyfisbréf sem íþróttakennarar
Þroskaþjálfum fagnað
Menntavísindasvið stendur að sérstakri brautskráningarathöfn í samvinnu við Þroskaþjálfafélag Íslands til að fagna nýjum þroskaþjálfum. Þessi leið er farin þar sem þau brautskrást með viðbótardiplóma í þroskaþjálfafræði og taka því ekki við skírteinum í Laugardalshöll. Á viðburðinum undirrituðu Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir, varaformaður Þroskaþjálfafélags Íslands viljayfirlýsingu um samstarf um undirbúning og framkvæmd Alþjóðaráðstefnu AIEJI, sem áformað er að haldin verði í Reykjavík 22. – 24. maí 2029.
Umsóknir í nám á Menntavísindasviði á pari milli ára
Umsóknarfrestur vegna grunnnáms rann út þann 5. júní og um flestar námsleiðir í framhaldsnámi þann 15. apríl. Menntavísindasviði HÍ bárust 788 umsóknir í grunnnám sem er hækkun á milli ára en í ár var ekki tekið inn í grunnnám í alþjóðalegu námi í menntunarfræði en árið 2025 bárust 259 umsóknir í þá námsleið. Lítilsháttar fækkun var á umsóknum um framhaldsnám. Þær voru 999 í ár en 1025 umsóknir í framhaldsnám 2025.
Örnám við Menntavísindasvið festir sig í sessi
Hátt tvö hundruð umsóknir bárust um örnám þvert á deildir Menntavísindasviðs og þess ber að geta að í júní luku sextán námi á eftirfarandi örnámsleiðum við Menntavísindasvið; Kennsla barna með fjölbreyttan bakgrunn, Kennsla íslensku og læsis, Stjórnun menntastofnana, Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf og Áhættuhegðun og velferð.
Myndirnar eru teknar á brautskráningarathöfn 13. Júní 2026. MYNDIR/Kristinn Ingvarssonánin






