577 kandídar brautskrást frá Heilbrigðisvísindasviði á laugardag

Ríflega 2600 kandídatar brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands laugardaginn 13. júní og líkt og undanfarin ár verða tvær brautskráningarathafnir í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.
Samtals brautskrást 577 kandídatar frá Heilbrigðisvísindasviði og skiptast þeir þannig eftir deildum sviðsins:
Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild (154)
MPH-próf í lýðheilsuvísindum (1)
MS-próf í geðhjúkrun (7)
MS-próf í hjúkrunarfræði (9)
MS-próf í ljósmóðurfræði til starfsréttinda (14)
Viðbótarpróf/-diplóma í sérsviðum hjúkrunar (25)
BS-próf í hjúkrunarfræði (98)
Lyfjafræðideild (29)
MS-próf í iðnaðarlíftækni (2)
MS-próf í lyfjafræði (8)
MS-próf í lyfjavísindum (1)
BS-próf í lyfjafræði (18)
Læknadeild (262)
MS-próf í iðnaðarlíftækni (1)
MPH-próf í lýðheilsuvísindum (2)
MS-próf í geislafræði (1)
MS-próf í lífeindafræði (14)
MS-próf í líf- og læknavísindum (5)
MS-próf í sjúkraþjálfun (24)
MS-próf í talmeinafræði (15)
Kandídatspróf í læknisfræði (53)
Viðbótarpróf í geislafræði (7)
Viðbótarpróf í lífeindafræði (2)
BS-próf í geislafræði (10)
BS-próf í lífeindafræði (18)
BS-próf í læknisfræði (59)
BS-próf í sjúkraþjálfunarfræði (33)
Grunndiplóma í heilbrigðisgagnafræði (16)
Matvæla- og næringarfræðideild (22)
MS-próf í iðnaðarlíftækni (1)
MS-próf í umhverfis- og auðlindafræði (1)
MS-próf í næringarfræði (2)
BS-próf í matvælafræði (5)
BS-próf í næringarfræði (12)
Sálfræðideild (97)
MS-próf í hagnýtri atferlisgreiningu (1)
Viðbótarpróf í hagnýtri atferlisgreiningu (6)
MS-próf í hagnýtri sálfræði (24)
MS-próf í sálfræði (1)
BS-próf í sálfræði (65)
Tannlæknadeild (13)
MS-próf í tannlæknavísindum (1)
BS-próf í tannlæknisfræði (7)
BS-próf í tannsmíði (5)
Brautskráð verður í tvennu lagi í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.
Fyrri brautskráningarathöfnin hefst kl. 10 en þar taka kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði og Hugvísindasviði við prófskírteinum sínum. Samtals brautskrást 738 frá Félagsvísindasviði, 577 frá Heilbrigðisvísindasviði og 401 frá Hugvísindasviði.
Seinni athöfnin hefst kl. 13.30 og hana sækja kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Alls brautskrást 654 frá Menntavísindasviði og 280 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði.
Beint streymi verður frá báðum athöfnum.
