Skip to main content

Ábyrg stjórnun viðburða og ferðaþjónustu, BA

Ábyrg stjórnun viðburða og ferðaþjónustu, BA

Ábyrg stjórnun viðburða og ferðaþjónustu

BA – 180 einingar

BA nám í ábyrgri stjórnun viðburða og ferðaþjónustu menntar fólk til forystu í viðburðahaldi og stjórnun ferðaþjónustu.

Skipulag náms

X

Ferðamál og viðburðir (FER1206120)

Í námskeiðinu er fjallað um málefni sem tengjast ferðamálum og viðburðum þar sem áfangastaðurinn Ísland er meginviðfangsefnið. Efnið verður jafnóðum sett í alþjóðlegt samhengi þar sem kynnt eru helstu hugtök og kenningar.  Farið verður stuttlega í sögu og þróun ferðamála. Unnið verður með kerfi ferðamála og viðburða, þróun áfangastaða, stjórnsýslu og stoðkerfi ferðamála og viðburða og áhrif á samfélög, efnahag og umhverfi.

Námskeiðið er eitt þeirra sem liggja til grundvallar landvarðarréttinda í samvinnu við Umhverfisstofnun.

 

 

X

Fjárhagur og rekstur (FJR1106120)

Fjallað er um grundvallaratriði tvíhliða bókhalds og bókhaldshringrásin rakin, farið yfir lög um bókhald og ársreikninga. Fjallað verður um flokkun gagna, bókhaldshugtök, uppsetningu bókhaldsskráningar og færslu bókhalds. Fjallað er um tekju- og útgjaldaskráningu út frá ólíkum rekstrarformum, sem og lögum og reglum um virðisaukaskatt. Einnig er fjallað um meðferð og uppgjör vörsluskatta, s.s. virðisaukaskatts og gistináttaskatts. Fjallað er um markmið rekstrar, rekstraruppgjör og tilgang ársreikninga, auk þess sem lesið verður í ársreikninga og samspil rekstrar- og efnahagsreikninga skýrt. Þá verður fjallað um laun og reiknað endurgjald, launauppgjör, kjarasamninga og skyldur launagreiðenda.

X

Inngangur að viðburðastjórnun (VBS2106210)

Fjallað er um eðli viðburða og fjölbreytileika þeirra, innanlands og á alþjóðavísu. Fjallað um tengsl viðburða og ferðaþjónustu. Kynntar eru aðferðir við skipulag, framkvæmd og gæðamat viðburða. Fjallað er um lög, reglur og öryggisatriði sem snúa að viðburðum.  Áhersla er lögð á að kynna nemendum ferlið frá hugmynd til framkvæmdar á viðburði. Fjallað er um áætlanagerð og mat á áhrifum viðburða.

 

X

Verklag í námi og starfi (VNS1006120)

Námskeiðið er inngangsnámskeið og tekur á ólíkum þáttum vinnulags í háskólanámi og rannsóknum. Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum hlutverk og skipulag háskóla, gagnrýna hugsun og eðli vísindalegra og fræðilegra vinnubragða. Námskeiðið veitir nemendum hagnýtan undirbúning að háskólanámi.

Í námskeiðinu er fjallað um fagleg vinnubrögð í námi og starfi, s.s. tímastjórnun, skipulag vinnu, samskipti í ræðu og riti, siðareglur, gerð ferilskráa og atvinnu- og styrkumsókna. Þá er rætt um framsögn og tjáningu; undirbúning og flutning á verkefnum og hvernig á að gefa og veita uppbyggilega gagnrýni.

Nemendur fræðast um gervigreind og hvernig kunnátta í notkun hennar er lykilhæfni í nútímasamfélagi. Nemendur fá innsýn í hvernig gervigreindartól – og tækni geta nýst í námi, læra að þekkja möguleika og takmarkanir þeirra hennar og að nýta þau á ábyrgan og gagnrýninn hátt.

Skoðaðir verða ólíkir textar og markmið þeirra greind. Farið verður yfir uppbyggingu stærri ritsmíða, t.d. skýrsla og rannsóknarritgerða, s.s. efnisþætti, afmörkun efnis, efnissöfnun, heimildaleit, röðun efnisatriða, stíll og framsetningu upplýsinga í mæltu og rituðu máli og heimildanotkun. Áhersla er á rétta meðferð heimilda. Höfundarréttur kynntur og þær takmarkanir sem eru á notkun á hugverkum annarra.

X

Markaðsfræði (MAR1306120)

Fjallað er um hugmyndafræði markaðsfræðinnar og nýtingu hennar sem stjórntækis í rekstri fyrirtækja með sérstaka áherslu á þjónustufyrirtæki. Fjallað um helstu lykilhugtök og skilgreiningar, innri greiningu fyrirtækja, markaðsrannsóknir og greiningu markhópa. Fjallað um verðlagningu og vöruþróun, markaðssamskipti og almannatengsl. Sérstaklega verður fjallað um markaðssetningu ferðaþjónustu og viðburða á netinu, einkum á samfélagsmiðlum.

 

X

Gestamóttaka, gisting og veitingar (GGV1506120)

Á námskeiðinu er farið yfir grundvallaratriði gestamóttöku og þau samskipti sem henni fylgja, ásamt þróun hugtaksins gestrisni (e. hospitality).  Móttaka gesta fer fram hvar sem er í ferðaþjónustu, svo sem á hótelum, veitingahúsum, afþreyingarfyrirtækjum, upplýsingamiðstöðvum.  Farið er yfir hvað þarf að hafa í huga við móttöku gesta til að upplifun þeirra sé sem best.  Í námskeiðinu eru bæði bókleg verkefni og verklegar æfingar með tengingu við þau gæðakerfi sem notuð eru í íslenskri ferðaþjónstu.

 

 

 

 

X

Verknám í viðburðastjórnun (VEV2012120)

Nemandi velur sér verknámsstað í samráði við umsjónarkennara námskeiðsins. Þegar verknámsstaður er fundinn er gerður samningur milli nemanda, leiðbeinanda á verknámsstað og Háskólans á Hólum. Ferðamáladeild er í samstarfi við fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki um allt land og getur umsjónarkennari námskeiðsins aðstoðað við valið. 

Verknámið felst í 200 stunda vinnu nemanda á verknámsstað s.s. þeirri að fylgjast með og rýna í verklag ásamt því að taka þátt í undirbúningi, skipulagi, framkvæmd og eftirvinnslu viðburðar. Nemandi heldur nákvæma vinnudagbók þar sem viðfangsefni dagsins eru greind, verklag rýnt af gagni og hugleiðingar um reynsluna skráðar. Nemandi skilar fjórum greiningarverkefnum og er reiknað með 150 - 180 tímum í gerð þeirra.

Vinnutími er á þeim tíma sem viðgengst á viðkomandi verknámsstaðnum. Mögulegt er að skipta verknámi upp í styttri tímabil eftir því hvernig verkefni raðast eða dreifa því á lengri tíma. Slíkt er samkomulagsatriði við leiðbeinanda á verknámsstað og umsjónarkennara námskeiðsins.

X

Menning og skapandi greinar (MSG2406170)

Í námskeiðinu er fjallað um hugtakið menningu í fortíð og nútíð. Fjallað er um samspil menningar, viðburða, ferðamála og skapandi greina  út frá alþjóðlegu sjónarhorni og íslensku. Farið verður í ýmis lykilhugtök eins og menningu, menningararf, skapandi greindar, framboð og eftirspurn menningar, upprunaleika, upplifunar- og skapandi ferðamennsku, miðlun og túlkun menningar, félags- og menningarleg þolmörk sem og tengsl gesta og gestgjafa. Nemendur skilgreina menningarferðamennsku og -ferðaþjónustu á Íslandi ásamt miðlun og túlkun menningar í hvers konar menningarstofnunum í landinu.  Nemendur fá innsýn inn í fjölbreytt störf og verkefni í skapandi greinum.

X

Straumar og stefnur í viðburðastjórnun (SSV2506170)

Námskeiðinu er ætlað að ná utan um þann mikla fjölbreytileika sem einkennir flóru viðburða hérlendis og á alþjóðavísu.  Ýmsar gerðir viðburða eru kynntar s.s. íþróttaviðburðir, tónlistarhátíðir, hátíðisdagar, persónulegir viðburðir, matartengdir viðburðir, bæjarhátíðir, ráðstefnur og fundir.

Fjallað verður um nýjustu strauma, stefnur og kenningar í viðburðastjórnun í nútímanum s.s. tækninýjungar, öryggisgæslu, sviðsetningu, samskipti við fjölmiðla og fleira.  Námskeiðið verður að hluta til byggt á efni sem sérhæfðir gestafyrirlesarar leggja til.

Gert er ráð fyrir að nemendur í námskeiðinu haldi ráðstefnu um stöðu viðburðastjórnunar á Íslandi í lok námskeiðs.

X

Menning og skapandi greinar (MSG2406170)

Í námskeiðinu er fjallað um hugtakið menningu í fortíð og nútíð. Fjallað er um samspil menningar, viðburða, ferðamála og skapandi greina  út frá alþjóðlegu sjónarhorni og íslensku. Farið verður í ýmis lykilhugtök eins og menningu, menningararf, skapandi greindar, framboð og eftirspurn menningar, upprunaleika, upplifunar- og skapandi ferðamennsku, miðlun og túlkun menningar, félags- og menningarleg þolmörk sem og tengsl gesta og gestgjafa. Nemendur skilgreina menningarferðamennsku og -ferðaþjónustu á Íslandi ásamt miðlun og túlkun menningar í hvers konar menningarstofnunum í landinu.  Nemendur fá innsýn inn í fjölbreytt störf og verkefni í skapandi greinum.

X

Umhverfisfræði (UMH1406120)

Fjallað verður um almenn atriði umhverfisfræðarinnar, svo sem: Náttúrusiðfræði, grundvallarhugtakið sjálfbæra þróun, sjálfbæra starfshætti og vottanir. Þá verður fjallað um hlutverk landvarða í stjórnsýslu, náttúruvernd, friðlýsingar, hlutverk friðlanda, þjóðgarða. Markmið og tilgangur gestastofa, stjórnsýsla umhverfismála og - stefna Íslands, verða kynnt. Einnig verður farið yfir umhverfisvandamál almennt, grunnatriði vistfræðinnar, - loftslagsbreytinga og afleiðingar þeirra á umhverfi okkar. Námskeiðið er eitt þeirra sem eru til grundvallar við veitingu landvarðarréttinda, í samvinnu við Umhverfisstofnun.

 

X

Rannsóknir í ferðamálum og viðburðastjórnun (RFV3206170)

Námskeiðið er kynning á grundvallaratriðum rannsóknahefða, hugmyndafræði og kenningaramma í félagsvísindum. Fjallað er um helstu áfanga í rannsóknaferli frá afmörkun viðfangsefnis til miðlunar á niðurstöðum rannsóknar. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk heimildavinnu við gerð yfirlits um stöðu þekkingar. Farið verður í það hvernig á að greina fræðileg rök og fullyrðingar um þekkingu á sviði ferðamálafræði og viðburðastjórnunar út frá helstu áföngum rannsóknaferlis s.s. afmörkun viðfangsefnis, skilgreiningu hugtaka, val rannsóknaraðferða, tengingu við kenningaramma, rannsóknarhefða og fyrirliggjandi rannsókna. Markmiðið er að þróa skilning nemenda á tengslum fræða og framkvæmdar í rannsóknum.

X

Upplifunarhönnun og viðburðir (UHV4606170)

Í námskeiðinu er fjallað um hvernig hanna má upplifun þátttakenda í viðburðum á markvissan og skapandi hátt. Nemendur kynnast hugmyndafræðinni að baki upplifunarhönnun (e. experience desing). Áhersla er lögð á að nemendur skilji hvernig upplifun gesta mótast af samspili rýmis, stemningar, frásagnar, þjónustu og þátttöku. Kynnt verða verkfæri til að öðlast dýpri skilning á þessum þáttum og hvernig má hanna upplifun með merkingu að leiðarljósi (e. design for meaning). Nemendur kynnast kenningum um upplifunarhagkerfið (e. experience economy) og læra hvernig nýta má þær við þróun viðburða sem skapa eftirminnileg og merkingarbær augnablik fyrir þátttakendur. Skynjun er ein af lykilþáttum upplifunarhönnunar. Útivera, staðarvitund og náttúruupplifun verða m.a. nýtt í námskeiðinu til að varpa ljósi á hvernig þessi þættir geta skapað eftirsóknarverða upplifun. Nemendur vinna með raunveruleg dæmi úr viðburðageiranum og þróa eigin hugmynd að viðburði þar sem upplifunarhönnun er í forgrunni. Lögð er áhersla á gagnrýna og skapandi hugsun og hagnýta notkun fræðilegra hugmynda við skipulagningu viðburða.

X

Þjónustustjórnun (ÞJS2106170)

Þjónustuhugtakið er skilgreint og fjallað um helstu hugtök um þjónustu sem og megineinkenni og sérstöðu hennar. Kenningar og aðferðir þjónustustjórnunar eru kynntar. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist helstu leiðum til að stýra þjónustu með þeim hætti að gæði þjónustu séu tryggð, upplifun viðskiptavina verði jákvæð og að þjónustuveitandi geti skapað sér samkeppnisforskot sem byggir á faglegri stjórnun veittrar þjónustu. Stjórnun og nýting ábendinga og kvartana eru tekin fyrir. Fjallað er um þjónustustefnu, hönnun þjónustuferla, þjálfun starfsfólks, mælingu þjónustugæða og áætlanagerð sem lýtur að stjórnun þjónustu. Áhersla er lögð á að að nemendur kynnist leiðum til að brúa með markvissum hætti bilið milli væntinga og upplifunar viðskiptavina og geti þannig stuðlað að auknu virði þjónustunnar og tryggð viðskiptavina.

 

X

Byggðaþróun (BYF2006120)

Fjallað verður um íslenska byggðaþróun í víðu samhengi, með áherslu á ferðamál. Í því ljósi verður farið yfir atvinnu- og efnahagsþróun, menntun, uppbyggingu samfélaga, verslun og þjónustu.  Íslensk byggðastefna verður rædd og einstaka þættir byggðaáætlunar metnir í ljósi árangurs og reynslu. Fjallað verður um byggðarannsóknir á þverfaglegum nótum og byggðamál á Íslandi settar í alþjóðlegt samhengi.

X

Hönnun ferðaþjónustuumhverfis (HFU2306180)

Fjallað er um hönnun umhverfis í ferðaþjónustu. Skoðaðar eru mismunandi aðferðir í hönnun ferðamannastaða og -mannvirkja og hvaða áhrif hönnun hefur á stjórn þeirra. Farið er yfir fræðilega og hagnýta þekkingu og úrlausnir á þessu sviði. Fjallað er um skipulagsmál, umhverfismat, sjálfbæra hönnun og stjórnun mannvirkja m.t.t. land-, orku- og auðlindanýtingu Komið er inn á lög og reglugerðir í tengslum við ýmsar framkvæmdir.

X

Ábyrg stefnumótun og verkefnastjórn (ÁSV4406170)

Námskeiðið fjallar um ábyrga mótun stefnu og stjórn verkefna þar sem leitast er við að undirbúningur, framkvæmd og frágangur viðburða og annarra verkefna sé í samræmi við sjálfbærnimarkmið sameinuðu þjóðanna og viðmið um ábyrga ferðamennsku og stjórnun.

Fjallað er um hugtök eins og sjálfbærni, ábyrga ferðamennsku/viðburði og nærandi ferðamennsku og innsýn veitt í þekkingarlegan bakgrunn þessara fræða. Fjallað er um tengsl og hlutverk mismunandi hagaðila í ábyrgu viðburðahaldi og ferðamennsku.

Nemendur læra að móta stefnu í  málefnum viðburðahalds og ferðamennsku út frá hagsmunum ólíkra hagaðila og öðlast innsýn í stjórn verkefna s.s. hjá  einstaklingum, frjálsum félögum, fyrirtækjum, sveitarfélögum og öðrum stjórnvaldsaðilum. Einnig er fjallað um gerð aðgerðaáætlunar til að fylgja eftir stefnu og styðja við stjórn verkefna.

X

Hagnýtt lokaverkefni (HLV4506170)

Í hagnýtu lokaverkefni gefst nemendum tækifæri á að sérhæfa sig í viðfangsefni að eigin vali í samráði við umsjónarmann námskeiðsins. Nemandi skilar einu verkefni í lok námskeiðs. Verkefni skal unnið í samræmi við leiðbeinandi handbók námskeiðsins um framkvæmd verkefnisins. Nemandi vinnur sjálfstætt að gerð verkefnisins samkvæmt leiðbeiningunum. Ekki er gert ráð fyrir að nemandi safni frumgögnum líkt og um rannsóknaverkefni sé að ræða, heldur er áhersla lögð á hagnýta greiningu viðburðahalds með áherslu á umhverfisstjórnun og ábyrga þróun.

X

Lög, reglur og öryggi (LRÖ2306170)

Viðfangsefni námskeiðsins er tvíþætt. Annars vegar er farið yfir lög, reglugerðir og leyfisveitingar er varða ferðaþjónustu, m.a. veitinga- og gististaði. Hins vegar er fjallað um öryggismál í ferðaþjónustu. Rætt er um samstarf hins opinbera við einkaaðila á sviði ferðamála, og hvaða þýðingu aðkoma stjórnvalda hefur á þróun og afkomu greinarinnar, gegnum lög og reglugerðir. Fjallað um öryggismál ferðaþjónustu í heild og í samhengi mismunandi tegunda ferðaþjónustu, veitinga- og gististaða. Skoðað er samstarf ferðaþjónustu, stjórnvalda og sjálfboðaliðahreyfinga um öryggismál. Þá eru skoðaðar mismunandi leiðir til þess að koma upplýsingum um lög, reglur og öryggismál á framfæri til erlendra og innlendra ferðamanna.

X

Stjórnun (STJ2006120)

Viðfangsefni námskeiðsins í stjórnun eru stjórnunarferlið, helstu stjórnunarkenningar og þróun þeirra. Ennfremur er hlutverk stjórnenda, í síbreytilegu viðskiptaumhverfi, skoðað s.s. færni, persónueinkenni, stjórnunarstíll og ábyrgð sem tengist vinnustaðamenningu, hagaðilum fyrirtækis, viðskiptasiðferði og frumkvöðlastarfi. Farið er í helstu störf stjórnanda s.s. markmiðssetningu, stefnumótun, áætlanagerð, skipulag, leiðsögn og eftirlit ásamt skipulagi fyrirtækis, starfa og verkefnisstjórnun. Grunnatriði mannauðsstjórnunar eru til skoðunar s.s. leiðtogastarf, hvatning, val og ráðning starfsfólks og leiðir til að mæta fjölbreytileika í starfsmannahópnum. Að síðustu er farið í það hvernig stýra má hópum/teymum til árangurs, leysa vandamál sem upp koma og auka starfsánægju.
Í verkefnum námskeiðsins eru hugtök, kenningar og líkön stjórnunar prófuð og sannreynd í ferðaþjónustufyrirtækjum.

X

Græn framtíð – skapandi lausnir (GFS4306170)

Námskeiðið fjallar um innleiðingu sjálfbærni og ábyrgðar í þróun og framleiðsluferlum viðburða, sjónvarpsefnis, kvikmyndagerðar og öðrum skapandi greinum. Rýnt er í með hvaða hætti slíkar greinar geta með smáum en markvissum skrefum náð aukinni sjálfbærni og þannig mætt nútíma kröfum og viðmiðum í sjálfbærni í viðburðahaldi og framleiðslu t.d. í kvikmyndagerð. Áhersla er lögð á ábyrgð þeirra sem að málum koma á öllum stigum viðburðahalds og framleiðslu. M.a. er fjallað um sjálfbærni, innleiðingu ábyrgra starfshátta, losun, sviðssetningu, eftirvinnslu og vottunarferli.

X

Rannsóknaraðferðir (RAN5206170)

Í námskeiðinu er fjallað um eigindlegar- megindlegar og blandaðar rannsóknaraðferðir. Fjallað er um heimspekilegan og aðferðafræðilegan grundvöll ólíkra rannsóknaraðferða. Kostir og gallar mismunandi aðferða til að afla upplýsinga/gagna eru ræddir og nemendur fá þjálfun í að velja rannóknaraðferðir við hæfi út frá eðli rannsóknaviðfangs og aðstæðna. Innsýn er veitt í helstu grunnatriði eigindlegra og megindlegra aðferða. Námskeiðið er hagnýtt og leggur grunn að hæfni nemenda til að greina og ræða helstu þætti í ferli rannsókna. Nemendur fá grunnþjálfun í afmörkun rannsóknaviðfangs, vali á rannsóknaaðferðum og beitingu valinna aðferða. Þannig þjálfast nemendur í að hefja, framkvæma og ljúka eigin rannsóknaverkefni.

X

Viðburðastjórnun og samfélag (VOS2206170)

Fjallað er um hlutverk og gildi viðburða í samfélaginu og rannsóknir á viðburðum.  Áhersla er lögð á mat á efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum áhrifum viðburða á einstaklinga og samfélög.  Fjallað er um viðburði í tengslum við kenningar um ferðaþjónustu og upplifun.  Sjónum er beint að alþjóðlegum stórviðburðum, landsþekktum viðburðum og einnig að smærri viðburðum og tengslum þeirra við samfélög.    

X

Gervigreind, tæknilausnir og miðlun (GTM5406170)

Í námskeiðinu er fjallað um þróun gervigreindar og annarra tæknilausna sem nýtast í viburðahaldi og ferðaþjónustu. Rýnt er í þær öru breytingar sem eiga sér stað í heiminum í dag og sem hefur umtalsverð áhrif á viðskiptaumhverfi og starfsumhverfi viðburða um heim allan. Horft er til tækifæra sem þessi þróun felur í sér t.d. varðandi það að taka þátt í eða fylgjast með viðburðum um allan heim án ferðalaga og í að halda viðburði á heimsvísu t.d. á Íslandi. Tækifæri og áskoranir tækninnar hverju sinni eru til skoðunar. Rætt er um siðferðislegar áskoranir gervigreindar og leiðir til að nýta hana með ábyrgum hætti. Fjallað er um miðlun á margvíslegu efni á sviði viðburða og ferðamennsku í gegnum ólíkar miðlunarleiðir og ört vaxandi hlutverk tæknilausna og gervigreindar á því sviði.

X

Náttúra, útivist og viðburðir (NUV5306170)

Námskeiðið fjallar um íslenska náttúru, sérstöðu hennar og þau tækifæri og áskoranir sem felast í henni fyrir útivist og viðburðahald hérlendis. Útivistarfræði eru kynnt og gerð grein fyrir tengslum útivistar og viðburðahalds fyrir ólíka hópa fólks á öllum aldri. Fjallað er um upplifun í náttúrunni og nemendur reyna á eigin skinni áhrif náttúru á upplifun sína.

X

Málstofa um ferðamál (MÁÍ3606120)

Námskeiðið er málstofa sem byggir fyrst og fremst á virkri þátttöku nemenda í umræðum annars vegar og í stýringu umræðna hins vegar. Markmiðið er að þjálfa nemendur í að taka þátt í fræðilegri umræðu um ferðamál og móttöku gesta. Í námskeiðinu lesa nemendur fræðigreinar tengdar málefnum sem hafa þýðingu fyrir ferðamál í íslenskum samtíma. Greinarnar eru á sviði ferðamálafræða, stjórnun í ferðaþjónustu og mótttöku gesta. Lögð er áhersla á að nemendur þjálfi hæfni í að greina fræðilegt efni, tengja við dægurumræðu um málefnin og koma því frá sér í rituðu og mæltu máli.


X

Fagmennska í leiðsögn (FAL3506120)

Námskeiðið byggir á þremur meginþáttum: Faginu, samskiptum og leiðsögutækni. Fjallað almennt um sögulega þróun og hlutverk leiðsögumanna Í ferðaþjónustu. Vakin athygli á fagmennsku þeirra, skyldum, ábyrgð og siðferðilegum álitamálum í starfi, til dæmis m.t.t hlutleysis. Starfsvettvangur þeirra skoðaður og hugað að vinnuumhverfi og aðstæðum. Farið yfir grunnþætti í tjáskiptum manna og mikilvægi jákvæðra samskipta við viðskiptavini á munnlegan og skriflegan hátt. Rætt verður um mismunandi menningarheima sem mætast í ferðaþjónustunni og reynt verður að auka næmni fyrir því að sjá Ísland með augum gesta. Unnið verður með samskiptatækni einkum við lykilaðila eins og bílstjóra, verkkaupa, samstarfsmenn og ferðamenn. Áhersla verður lögð á að nemandinn öðlist færni í að umgangast og leiðbeina gestum með góðum og faglegum hætti og leiði þá saman við íslenska náttúru, sögu og menningu á skemmtilegan og ábyrgan hátt. Áhersla lögð á að þjálfa ýmsa þætti í leiðsögutækni; að vinna með og stjórna hópum, leiðtogahlutverk leiðsögumanna, framkomu, framsögn, tjáningu, raddbeitingu og gerð pistla. Á námskeiðinu eiga nemendur að undirbúa og framkvæma leiðsögn með samnemendum og fyrir valinn hóp.

 

X

Vöruþróun og nýsköpun (VON2806120)

Námskeiðið miðar að þróun viðskiptahugmyndar yfir í viðskiptatækifæri. Fjallað er um meginhugtökin nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi. Farið er yfir grundvallaratriði við vöruþróun og hugmyndavinnu. Farið yfir helstu þætti varðandi vöruþróunarferlið sjálft sem og hugmyndavinnu og gildi hópa fyrir vöruþróunarferlið. Jafnframt er farið yfir helstu þætti við val og síun hugmynda. Einnig er fjallað um klasa og klasasamstarf. Nýsköpun á Íslandi, með áherslu á ferðaþjónustu, eru gerð skil. 

 

X

Forysta og mannauður (FMA6106170)

Í námskeiðinu eru fjallað um leiðtogafræði og mikilvægi mannauðs í viðburðahaldi og ferðaþjónustu. Forysta er skoðuð frá ýmsum sjónarhornum bæði fræðilegum og hagnýtum. Fjallað er um muninn á stjórnanda og leiðtoga og kenningar og hugtök leiðtogafræðanna kynnt sem og nýjustu straumar og stefnur í fræðunum. Fjallað er um mismunandi leiðtogastíla og með hvaða hætti ólíkir leiðtogar leiða sitt fólk og hafa áhrif á þróun hópa. Rætt er um forystu og stjórnun í teymum og árangursrík samskipti við starfsmenn, gesti og aðra hagsmunaaðila. Fjallað er um völd, ákvarðanatöku, samningatækni, lausn vandamála, ánægju starfsmanna og markmiðasetningu. Einnig er komið inn á siðferðileg álitamál í forystu og stjórnun á sviði viðburðahalds og ferðaþjónustu.

X

BA lokaverkefni (BAL3912210)

BA lokaverkefni er 12 ECTS og felst í því að nemandinn velur annað hvort að skrifa BA ritgerð, sem byggir á sjálfstæðri rannsókn, eða taka BA verknám sem byggir á 200 stunda verknámi á viðurkenndum verknámsstað, dagbók og gerð lokaskýrslu með fræðilegri tengingu.

Markmið BA lokaverkefnis er að nemandi öðlist þekkingu og færni til þess að undirbúa og fullvinna sjálfstætt verkefni á sviði ferðamála og/eða tileinki sér sjálfstæð og markviss vinnubrögð við úrlausn raunverulegra verkefna á sviði ferðamála.

Allir nemendur kynna verkefni sín í lokamálstofu námskeiðsins.

X

Náttúra Íslands (NÁT1806120)

Gefið verður yfirlit yfir lífríki, veðurfar og jarðfræði landsins. Fjallað verður um helstu hópa lífvera á landi, í fjöru, í ferskvatni og í sjó, svo sem gróður, smádýr, fiska, fugla og spendýr. Fjallað verður um jarðfræði og uppruna Íslands, berggerðir, landslag, gerðir eldgosa og eldstöðva, jarðhita, og landmótun með sérstakri áherslu á jarðfræðilega fjölbreytni Íslands. Fjallað verður um vistfræði og samverkun hinnar lifandi og lífvana náttúru.

Námskeiðið er eitt þeirra sem eru til grundvallar við veitingu landvarðarréttinda, í samvinnu við Umhverfisstofnun.

X

Upplifun og afþreying ferðafólks (UAF1706170)

Fjallað um kenningar um eðli frístunda, afþreyingar og upplifunar. Rætt verður um gildi afþreyingar í nútíma samfélagi, framboð hennar og eftirspurn. Sérstök áhersla verður lögð á eðli upplifunar og leiðir til þess að gera afþreyingu ferðamannsins að því ævintýri (adventure) sem sóst er eftir.Rætt verður um ólíka hvata og væntingar til afþreyingar og mikilvægi þess að öll áhætta sé lágmörkuð þannig að jákvæð upplifun ferðamannsins sé sem best tryggð.

 

X

Gönguferðir, leiðsögn og stígagerð (GÖL1606120)

Fjallað er um starf, hlutverk og ábyrgð gönguleiðsögumanna og landvarða á breiðum grundvelli. Farið verður yfir grunnþætti gönguleiðsagnar og ferðamennsku á fjöllum þ.m.t. undirbúning, útbúnað, öryggismál, rötun, leiðaval og leiðsögn.

Fjallað er um hlutverk og ábyrgð landvarða og gönguleiðsögumanna gagnvart náttúrunni og upplýsinga- og fræðsluskyldu gagnvart ferðamönnum. Fjallað verður um gildi fræðslu fyrir ferðamenn og farið verður yfir hagnýta þætti við skipulag, undirbúning og framkvæmd fræðslu í gönguferðum.

Sérstaklega er fjallað um hugmyndafræði náttúrutúlkunar og farið yfir helstu grundvallaratriði og aðferðir. Lögð er áhersla á að nemendur noti aðferðir náttúrutúlkunar í verkefnum á vettvangi.

Fjallað verður um uppbyggingu og viðhald gönguleiða og –stíga. Farið verður í leiðarval á gönguleiðum, viðgerðir á illa förnum göngustígum, tröppugerð, viðbrögð við vandamálum tengdum vatni og leysingum, o.fl. Þessi hluti námskeiðsins er skipulagður í samvinnu við Umhverfisstofnun. 

Námskeiðið er eitt þeirra sem eru til grundvallar við veitingu landvarðarréttinda, í samvinnu við Umhverfisstofnun.

X

Menningararfur er auðlind (MEA3706120)

Fjallað verður um hugtakið menningararf, tilurð hans og miðlun, einkum þætti sem lúta að sögu, minjum og þjóðháttum. Gerð verður grein fyrir menningarlandslagi og minjaheildum. Fjallað verður um menningararf sem aðdráttarafl og helstu álitamál og kenningar um nýtingu menningararfs í ferðaþjónustu. Farið verður yfir lög, reglugerðir og sáttmála sem í gildi eru um íslenskan menningararf og starfssemi stofnana á sviði minjavörslu og kynntar leiðir til miðlunar á menningararfi fyrir ferðafólk.

 

X

Sveitir og sjávarbyggðir (SOS2706120)

Viðfangsefni þessa námskeiðs er ferðaþjónusta í dreifbýli og fjallað um aðferðir sem stuðla að farsælli uppbyggingu hennar. Fjallað verður um hnattvæðingu, markaðsvæðingu dreifbýlisins og hvers eðlis aðdráttarafl þess er. Sérstök áhersla verður á aðferðir sem auka þátttöku íbúa dreifbýlisins og stuðla að aukinni virkni og nýsköpun í ferðaþjónustu.

 

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hægt er að hafa samband við þjónustuborð Háskólans á Hólum og senda fyrirspurnir varðandi nám og umsóknir á netfangið holar@hi.is.

Fylgdu HÍ á Hólum á:
FacebookYoutubeInstagram, TikTok

Aðalbygging háskóla íslands á hólum