Skip to main content

Alþjóðasamskipti - Viðbótardiplóma, 30 einingar

Alþjóðasamskipti - Viðbótardiplóma, 30 einingar

Félagsvísindasvið

Alþjóðasamskipti

Viðbótardiplóma – 30 einingar

Námi í alþjóðasamskiptum er ætlað að mæta vaxandi þörf í samfélaginu fyrir vel menntað starfsfólk með þekkingu á alþjóðasamskiptum.

Diplóma í alþjóðasamskiptum er hagnýt 30 eininga námsleið fyrir þá sem lokið hafa BA- eða BS-námi í einhverri grein. Í framhaldinu geta nemendur sótt um í meistaranám í alþjóðasamskiptum og fá þá diplómanám sitt metið að fullu (30e) inn í MA-námið. Athugið! Námið verður kennt sem 30 ECTS örnám (ekki viðbótardiplóma) frá hausti 2025.

Skipulag náms

X

Kenningar í alþjóðasamskiptum (ASK102F)

Námskeiðið er inngangur að kenningum í alþjóðasamskiptum. Það veitir nemendum undirstöðu til greininga á öðrum sviðum alþjóðasamskipta. Mælt er með að nemendur taki það sem fyrst á námsferlinum. Í námskeiðinu eru nemendur kynntir fyrir kenningaramma alþjóðasamskipta með það að markmiði að þroska færni þeirra til að skilja og greina viðburði samtímans með því að beita kenningum.

Viðfangsefnið er skoðað í gegnum helstu umræður (e. debates) í fræðunum, með áherslu á raunhyggju (e. realism), frjálslynda stofnanahyggju (e. liberalism/liberal institutionalism), og mótunarhyggju (e. constructivism) og samspil sögulegra og vísindalegra aðferða annars vegar og gerendahæfni og formgerðar hins vegar.

Fjallað er um viðfangsefni alþjóðasamskipta. Annars vegar þær aðferðir sem kenningarnar nota til að varpa ljósi á þessi efni og hins vegar hvernig kenningarnar lýsa stjórnmálum alþjóðakerfisins.

Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og umræðum, í minni og stærri hópum. Áhersla er lögð á að nemendur þroski greiningar- og ritfærni í gegnum skil á ólíkum rituðum verkefnum.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hvað segja nemendur?

Áslaug Karen Jóhannsdóttir, sérfræðingur á upplýsinga- og greiningadeild utanríkisráðuneytisins
Valgerður Húnbogadóttir
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
Meistaranám í alþjóðasamskiptum

Ég útskrifaðist úr meistaranámi í alþjóðasamskiptum árið 2014. Ég var með grunn í fjölmiðlafræði og hafði starfað í nokkur ár á litlu héraðsfréttablaði, þegar ég fann að ég vildi víkka sjóndeildarhringinn. Og hvort ég gerði. Námið fór með mig út í heim og inn í hinar ýmsu alþjóðastofnanir, bæði í fræðilegri og bókstaflegri merkingu. Undirstöðuatriðin sem ég lærði um alþjóðakerfið og samskipti ríkja hafa nýst mér að námi loknu, fyrst í áframhaldandi störfum í blaðamennsku og ennfremur í núverandi starfi mínu í utanríkisráðuneytinu.  

Nemendur í meistaranámi í alþjóðasamskiptum eru með ólíkan bakgrunn og hafa þar af leiðandi ólíka sýn á viðfangsefni námsins. Í þannig umhverfi spretta gjarnan áhugaverð skoðanaskipti og umræður sem ögra ríkjandi hugmyndum og kveikja nýjar. Kennararnir hafa einnig einstakt lag á því að setja málefni líðandi stundar í samhengi við námsefnið. 

Ég mun alltaf vera þakklát fyrir reynsluna, lærdóminn og ekki síst vináttuna sem ég öðlaðist í alþjóðasamskiptum.  

Hafðu samband

Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500 
Netfang: nemFVS@hi.is

Opið virka daga frá 09:00 - 15:00 
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík

Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs

Stjórnmálafræðideild á samfélagsmiðlum

 Instagram   Facebook

Gimli, Háskóli Íslands

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.