Skip to main content

Barnavernd - Viðbótardiplóma

Barnavernd - Viðbótardiplóma

Félagsvísindasvið

Barnavernd (ekki tekið inn 2024-2025)

Viðbótardiplóma – 30 einingar

Markmið námsleiðarinnar er að koma til móts við þörf fyrir þverfaglega þekkingu, bæði fræðilega og hagnýta á sviði barnaverndar og auka færni háskólamenntaðra starfsmanna.

Umsækjendur skulu starfa við barnaverndarþjónustu við málsmeðferð og hafa minnst þriggja ára starfsreynslu á því sviði ásamt því að vera í handleiðslu á vegum síns vinnustaðar þann tíma sem námið stendur.

Skipulag náms

X

Börn og fjölskyldur (FRG123F)

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist dýpri þekkingu á vinnu með börnum og fjölskyldum sem barnaverndarnefndir hafa afskipti af. Farið verður yfir ríkjandi stefnur og strauma í barnaverndarstarfi. Nemendur munu fá þjálfun og kennslu í viðtalstækni sem nýta má í vinnu með börnum og fjölskyldum og áhersla lögð á að kynna ýmis hjálpargögn í slíkri vinnu.

X

Lög, vinnulag og samstarf (FRG236F)

Markmið námskeiðsins er að dýpka þekkingu nemenda á barnaverndarlögunum, hlutverki þeirra og samspili við önnur lög svo sem barnalög, grunn- og framhaldsskólalög, félagsþjónustulög, lög um málefni fatlaðs fólks og samhengi þeirra  við alþjóðalög og samninga. Leitast verður við að kynna sjónarhorn þeirra sem vinna að barnaverndarmálum á öðrum vettvangi svo sem dómara, lögmanna, réttargæslumanna og formanna barnaverndarnefnda.

X

Fagmaðurinn og leiðtoginn í barnaverndarstarfi (FRG311F)

Markmið námskeiðsins er að styrkja leiðandi og faglegt hlutverk barnaverndarstarfsmannsins innan eigin vinnustaðar og úti á vettvangi. Áhersla verður lögð á að kynna aðferðir sem eru líklegar til að viðhalda áhuga og ástríðu fyrir starfinu, svo sem handleiðslu, núvitund og samkennd. Hér verður lögð áhersla á rannsóknir og hvernig þær nýtast í starfi, faglegum þroska, starfþróun og við mat á vinnslu barnaverndarmála.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500 
Netfang: nemFVS@hi.is

Opið virka daga frá 09:00 - 15:00 
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík

Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs

Félagsráðgjafardeild á samfélagsmiðlum

 Facebook

Gimli, Háskóli Íslands

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.