Persónusaga – Þjóðarsaga?
Listasafn Reykjavíkur
Ráðstefna: Persónusaga - Þjóðarsaga?
Listasafn Reykjavíkur efnir til ráðstefnu um einstaklingssöfn í opinberri vörslu undir yfirskriftinni Persónusaga – Þjóðarsaga. Ráðstefnan stendur frá kl. 10-16.
Á ráðstefnunni verður rædd staða einkasafna sem hluta af íslenskri safnaflóru. Tilgangurinn er meðal annars sá að greina hvaða starfsemi er í kringum slík söfn, hvernig þeim er haldið lifandi og hvort að þau styrki eða skekki safneignir einstakra safna og hvaða áhrif tilvist þeirra hefur á listasöguna.
Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Rannsóknarsetur í safnafræðum og flytja fulltrúar frá mörgum af helstu listasöfnum landsins erindi. Flutt verða erindi um tilvist einkasafna utan höfuðborgarsvæðisins og um það hvernig einstaklingar takast á við það hlutverk að eignast arfleið listamanns sem getur talist þjóðarafur. Aðalfyrirlestur flytur Onita Wass safnstjóri Millesgården í Stokkhólmi sem er einstaklingssafn myndhöggvarans Carl Milles (1875-1955) eins lærimeistara Ásmundar Sveinssonar.
Skráning HÉR
Dagskrá
Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri - Listasafn Reykjavíkur
Opnunarávarp
Onita Wass safnstjóri – Millesgården, Stokkhólmi
Millesgården an artist home from the 1900´s into the 20th century
Sigurður Trausti Traustason deildarstjóri safneignar og rannsókna – Listasafn Reykjavíkur
Einstaklingssöfn innan Listasafns Reykjavíkur í fortíð, nútíð og framtíð
HÁDEGISHLÉ
Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor – Rannsóknarsetur í safnafræðum
Safnafræði um einkasöfn og hið opinbera
Sigríður Melrós Ólafsdóttir safnstjóri - Listasafn Einars Jónssonar
Hnitbjörg falinn fjársjóður?
N.N. Gerðarsafn - Listasafn Kópavogs
N.N. Listasafn Íslands
KAFFIHLÉ
Halla Hauksdóttir stjórnarformaður - Listaverkasafn Valtýs Péturssonar
Að sitja uppi með fjársjóð
Hanna Dís Whitehead safnvörður - Listasafn Svavars Guðnasonar
Á grunni forms og lita
UMRÆÐUR, RÁÐSTEFNUSLIT OG LÉTTAR VEITINGAR
Ráðstefna um listasöfn einstakinga í opinberri vörslu. Onita Wass, safnstjóri Millesgaarden í Stokkhólmi meðal fyrirlesara. Skráning á listasafnreykjavikur.is.