Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt sumarnám sem mun henta bæði þeim sem eru nú þegar í námi og þeim sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði, brúa færnibil eða skipta um starfsvettvang. Hér að neðan getur þú skráð þig í námskeið fyrir almenning.
Námskeið hjá edX.org
Almenningi stendur til boða að taka ókeypis netnámskeið af vef edX.org. Vilji viðkomandi fá vottorð fyrir að ljúka námskeiðinu og aðgang að námsmati þarf hann á hinn boginn að greiða námskeiðsgjald. Með því að sækja um netnámskeið hjá Háskóla Íslands fæst 10% afsláttur af námskeiðsgjöldum. Þessi netnámskeið eru tilvalin fyrir þau sem vilja dýpka þekkingu sína á ákveðnum málaflokki og stuðla að náms- og starfsþróun. Hægt er að kynna sér fjölbreytt námskeiðsúrval á vef edX. Athugið að skráning fer fram á vef edX.org.
- Hægt verður að sækja aflsáttarkóða fyrir edX frá og með 1. júní.
- Leiðbeiningar hvernig skal nýta afsláttarkóða (leiðbeiningar á ensku)
Námskeið hjá Endurmenntun HÍ
Almenningi stendur til boða að taka námskeið hjá Endurmenntun HÍ fyrir 3.000 kr. hvert námskeið. Hægt er að skoða námskeiðaúrval á vef Endurmenntunar HÍ. Athugið að þetta úrræði er einungis í boði sumarið 2020. Athugið að skráning fer fram á vef Endurmenntunar HÍ.
Námskeið hjá HÍ
Boðið er upp á eftirfarandi námskeið handa almenningi.
- ÞJÓ029G Þjóðfræði í hnotskurn: Frá ómenningu til mannáts, með tónlist, torfi og ævintýrum í bland
- FÉL031G Íslenska þjóðfélagið - fyrir alla
- ÍSE034G Icelandic 1 (A1.1)
- ÍSE035G Icelandic 2 (A1.2)
- ÍSE036G Icelandic 3 (A2.1)
- ÍSE037G Icelandic 4 (A2.2)
- ÍSE038G Icelandic for Academic Purposes 1 (B2.1)
- ÍSE039G Icelandic for Academic Purposes 2 (B2.2)
- Þú getur skráð þig í þessi námskeið annað hvort með því að skrá þig sem nemandi HÍ næsta haust eða að skrá þig eingöngu til sumarnámsins.