Bálkakeðjutæknin og GDPR: hvernig beitum við nýju regluverki á nýja tækni?
VR-II
Stofa 157
Erna Sigurðardóttir flytur erindi á fyrirlestraröðinni Rafmyntir á þriðjudögum. Erindi hennar ber heitið Bálkakeðjutæknin og GDPR: hvernig beitum við nýju regluverki á nýja tækni?
Erna er lögfræðingur og starfar hjá Skatta- og lögfræðiráðgjöf Deloitte ásamt því að sitja í stjórn VERTOnet, hagsmunasamtaka kvenna í upplýsingatækni og Gæðaráði íslenskra háskóla.
Hún hefur sérstakan áhuga á lögfræðilegum álitaefnum tengdum nýrri tækni. Einnig hefur hún mikinn áhuga á menntamálum og telur mikilvægt að lögfræðingar tileinki sér nýja þekkingu og færni í takt við öra tækniþróun svo að þeir búi yfir hæfni til þess að takast á við þau álitaefni sem upp geta komið í tengslum við tækninýjungar.
Erna skrifaði meistararitgerð um bálkakeðjutæknina og stjórnarhætti fyrirtækja og rannsakaði hvort að það væri tækifæri til að styrkja hlutverk hluthafafunda og auka þátttöku hluthafa með bálkakeðjutækninni.
Rafmyntir á þriðjudögum er fyrirlestrarröð Háskóla Íslands um rafmyntir. Fyrirlestrarnir fara fram alla þriðjudaga kl 15:00 í VR-II, stofu 157 og er markmiðið að kafa ofan í alla anga rafmynta og undirliggjandi tækni.
Erna Sigurðardóttir