Áfram íslenska
Harpa
Hver er staða íslenskukennslu í skólakerfinu? Hvað virkar vel og hvað má gera betur? Ert þú með skoðun á því eða hugmynd sem þig langar að koma á framfæri?
Mennta- og menningarmálaráðuneytið skipuleggur ráðstefnu um íslenskukennslu í skólum landsins í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga hinn 1. apríl nk.
Við hvetjum skólafólk og alla velunnara íslenskunnar til þátttöku. Frítt er á ráðstefnuna en nauðsynlegt er að skrá sig á slóðinni www.mrn.is/aframislenska
Ráðstefnan er liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að styrkja íslensku sem opinbert mál en eitt af markmiðunum er að efla íslenskukennslu á öllum skólastigum. Útgangspunktur ráðstefnunnar er niðurstöður rannsóknar á stöðu íslenskukennslu sem miðlað er í nýrri bók sem ritstýrt er af Kristjáni Jóhanni Jónssyni og Ásgrími Angantýssyni, Íslenska í grunnskólum og framhaldsskólum. Niðurstöður sýna jákvætt og virðingarvert starf en einnig ýmislegt sem betur má fara.
Dagskrá:
Ráðstefna í Silfurbergi Hörpu, 1. apríl kl. 15:30
• Ávarp Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra.
• Íslenska í grunnskólum og framhaldsskólum. Kristján Jóhann Jónsson, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
• „Hann varð snemma illa læs.“ Hilmar Hilmarsson, stjórnarmaður í Íslenskri málnefnd og fyrrverandi grunnskólastjóri og Sigrún Birna Björnsdóttir, formaður Samtaka móðurmálskennara og sérfræðingur hjá Kennarasambandi Íslands.
• Skilningur og þekking á tungumálum og málfræði. Finnur Friðriksson, dósent við Háskólann á Akureyri, og Sigurður Konráðsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
• Hverju barni og unglingi hæfir einhver frásögn. Dagný Kristjánsdóttir, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, og Jón Yngvi Jóhannsson, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
• „Það drap alveg minn yndislestur að vera í skóla.“ Brynhildur Þórarinsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri.
• „Leiðindamál. Sem við þurfum að ræða aðeins betur.“ Bragi Valdimar Skúlason, íslenskufræðingur, lætur ýmislegt í ljós.
• Mælingar á málþroska leikskólabarna. Jóhanna Thelma Einarsdóttir, dósent við Heilbrigðis- og Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Fundarstjóri verður Karl Ágúst Úlfsson, formaður Rithöfundasambands Íslands.
Að erindum loknum verða pallborðsumræður undir stjórn Braga Valdimars Skúlasonar. Ráðstefnunni lýkur með móttöku.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið skipuleggur ráðstefnu um íslenskukennslu í skólum landsins í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga.