Stefnumót við fyrrum skiptinema
Hvenær
24. október 2018 12:30 til 13:30
Hvar
Stúdentakjallarinn
Nánar
Aðgangur ókeypis
Komdu í Stúdentakjallarann í hádeginu og spjallaðu við nemendur við HÍ sem hafa farið í skiptinám. Það er ómetanlegt fyrir þá sem hafa áhuga á að taka hluta af náminu erlendis að hitta nemendur sem hafa nýtt sér tækifærið og farið í skiptinám. Tveir nemendur ætla að segja í stuttu máli frá dvöl sinni og svo verða fyrrum skiptinemar tilbúnir að spjalla og svara spurningum áhugasamra. Fulltrúar frá Skrifstofu alþjóðasamskipta verða á staðnum auk fulltrúa í alþjóðanefnd Stúdentaráðs.
Hlökkum til að hitta ykkur!
Nemendum gefst tækifæri á að spyrja fyrrum skiptinema spjörunum úr um reynslu þeirra af námsdvöl erlendis