Móttaka nýnema á Hugvísindasviði
Háskólatorg - stofa 105
Nýnemum við Hugvísindasvið er boðið á kynningarfund föstudaginn 25. ágúst kl. 13:00-15:00. Að loknum kynningarfundi í stofu 105 á Háskólatorgi verða kynningarfundir í námsgreinum kl. 14:00. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám í viðkomandi greinum.
Dagskrá fundarins:
- Ávarp Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands.
- Kynning á Hugvísindasviði. Guðmundur Hálfdanarson, forseti Hugvísindasviðs.
- Stutt kynning á deildum.
Oddný G. Sverrisdóttir, forseti Mála- og menningardeildar.
Arnfríður Guðmundsdóttir, forseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar.
Gunnþórunn Guðmundsdóttir, forseti Íslensku- og menningardeildar.
Svavar Hrafn Svavarsson, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar. - Kynning á Uglu. Haukur Jóhann Hálfdánarson kerfisfræðingur.
- Kynning á félagslífi. Ingvar Þór Björnsson, formaður sviðsráðs Hugvísindasviðs og í stjórn Stúdentaráðs.
Kennsla hefst mánudaginn 28. ágúst. Sama dag hefjast nýnemadagar Háskóla Íslands en þar verður boðið upp á gönguferðir um háskólasvæðið, kynningar á þjónustu og skemmtidagskrá.
Á nýnemavef Háskóla Íslands, hi.is/nynemar, vef Stúdentaráðs, student.is, og á vef Hugvísindasviðs, hug.hi.is, eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Ef þið hafið einhverjar spurningar um námið hvet ég ykkur til að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga.
Kynningarfundir í námsgreinum kl. 14:00
Mála- og menningardeild:
- Spænska - Veröld stofa 007
- Ítalska - Veröld stofa 227
- Kínversk fræði - Veröld stofa 108
- Gríska og latína - Veröld stofa 207
- Frönsk fræði - Veröld stofa 103
- Japanskt mál og menning - Veröld stofa 008
- Enska - Háskólatorg stofa 104
- Þýska - Veröld stofa 107
- Danska - Veröld stofa 228
- Sænska - Veröld stofa 222
- Rússneska - Veröld stofa 104
Guðfræði- og trúarbragðafræðideild:
- Guðfræði - Aðalbygging stofa 229
Íslensku- og menningardeild:
- Íslenska - Árnagarður stofa 201
- Almenn málvísindi - Aðalbygging stofa 051
- Táknmálsfræði - Árnagarður stofa 310
- Almenn bókmenntafræði - Aðalbygging stofa 207
- Kvikmyndafræði - Aðalbygging stofa 052
Sagnfræði- og heimspekideild:
- Fornleifafræði - Aðalbygging stofa 050
- Sagnfræði - Árnagarður stofa 301