Cand. psych. nám er fræðilegt og verklegt framhaldsnám við Sálfræðideild Háskóla Íslands. Námið uppfyllir skilyrði íslenskra laga um réttindi til að starfa sem sálfræðingur.
Cand. psych. námið tekur tvö ár (120e). Á fyrra árinu er áherslan á námskeið en seinna árið felst einkum í starfsþjálfun og vinnu að lokaverkefni (30e). Hægt er að velja um tvö áherslusvið:
- Klínísk sálfræði fullorðinna
- Klínísk barnasálfræði og skólasálfræði
Í náminu er boðið upp á fjölbreytt námskeið sem fjalla meðal annars um greiningar á geðröskunum og öðrum sálfræðilegum vanda, sálfræðileg próf, sálmeinafræði barna og unglinga og sálmeinafræði fullorðinna. Einnig eru kenndar aðferðir við meðferð barna, unglinga og fullorðinna, meðferð hegðunar- og námsvanda í skólum auk hagnýtrar atferlisgreiningar.
Kennslan er fræðileg og hagnýt og miðar að þjálfun nemenda í að takast á við sálfræðileg viðfangsefni og að taka faglega afstöðu til álitamála með vísindalega aðferð að leiðarljósi.
Áhersla er lögð á starfsþjálfun undir handleiðslu sálfræðinga og er hún um fjórðungur af náminu.
Starfsþjálfunin fer víða fram á stofnunum utan háskólans, meðal annars hjá:
- Landspítala-Háskólasjúkrahúsi
- Þroska- og hegðunarstöð ríkisins
- Þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar
- Reykjalundi
- Kvíðameðferðarstöðinni
- Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
Nemendur öðlast einnig mikilvæga þjálfun í Sálfræðiráðgjöf háskólanema sem Sálfræðideildin rekur.
Meðal fastráðinna kennara í náminu má nefna fjóra kennara með sérhæfingu í klínískri sálfræði, einn kennara með sérhæfingu á sviði atferlisgreiningar og atferlismeðferðar og kennara sem sérhæfa sig í próffræði og tölfræði.