Skip to main content

Morgunverðarfundur um mengun í jarðvegi

 Morgunverðarfundur um mengun í jarðvegi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. október 2024 8:20 til 10:00
Hvar 

Háskólatorg

HT 103

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Háskóli Íslands og Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍs) bjóða til morgunverðarfundar um mengun í jarðvegi.  Þó svo að jarðvegsmengun hafi ef til vill ekki verið mikið áhyggjuefni á strjálbýla Íslandi, þá getur jarðvegur verið mengaður af þrávirkum eiturefnum vegna löngu liðinnar starfsemi. Auðgreining slíkra mengunarefna krefst sérhæfðrar sýnatöku og greiningu á tilraunastofu, sem getur verið mjög kostnaðarsamt. Á fundinum verða áskoranir tengdar mengun í jarðvegi á Íslandi ræddar og fengin innsýn í hvernig Bandarísk stjórnvöld hafa tekist á við þennan vanda. Viðburðurinn fer að hluta til fram á ensku. 

Dagskrá

Kl. 8:20  Boðið upp á kaffi í anddyri hússins

Kl. 8:40  Hrund Ólöf Andradóttir, deildarforseti umhverfis- og byggingarverkfræðideildar HÍ, setur og stýrir fundi

Kl. 8:45  Áskoranir á Íslandi

  • Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, mengunarsérfræðingur hjá Verkís, formaður Fagfélags um mengun á Íslandi (FUMÍS)
  • Baldur Dýrfjörð, lögfræðingur og starfsmaður HS veitna, meðstjórnandi VAFRÍS

Kl. 9:15  Reynslan frá Bandaríkjunum, Prófessor og Fulbright sérfræðingur Rainer Lohmann (á ensku)

Kl. 9:45 Umræður í sal

Kl. 10:00 Fundi slitið

Til að hjálpa að áætla veitingar þætti okkur vænt um að þið skráðuð ykkur á fundinn: https://ugla.hi.is/K2/eydublad.php?sid=135&fid=11284

Um Fulbright sérfræðinginn Rainer Lohmann:

Dr. Rainer Lohmann er prófessor við haffræðideild háskólans í Rhode Island. Hann nam efnaverkfræði við EHICS í Strasbourg í Frakklandi, og lauk doktorsnámi í umhverfisverkfræði við Lancaster háskóla í Bretlandi. Hann er forstöðumaður Superfund Research Program Center um uppsprettur, flutning, útsetningu og áhrif PFAS efna í umhverfinu. Rannsóknir hans beinast að mæla og greina örlög mengunarvalda af mannavöldum í umhverfinu, oft með óbeinum sýnatökuaðferðum.

Dr. Lohmann starfaði í stýrinefnd stjórnar vísindaráðgjafa Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna árin 2017-2023. Hann hlaut Fulbright Arctic Initiative III árið 2020 og Alexander-von-Humboldt Fellowship árið 2011. Sem meðlimur Global PFAS Science Panel og International Panel on Chemical Pollution hefur Dr. Lohmann starfað við að gera vísindi aðgengileg fyrir stefnumótendur. Hann heimsækir Háskóla Íslands sem Fulbright sérfræðingur með stuðningi frá Fulbright Íslandi.

Dr. Rainer Lohmann

 Morgunverðarfundur um mengun í jarðvegi