Með fróðleik í fararnesti: Stjörnur og norðurljós með Sævari Helga við Kaldársel
![Með fróðleik í fararnesti: Stjörnur og norðurljós með Sævari Helga við Kaldársel - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/saevar_helgi_bendill_stjornuskodun_0.jpg?itok=RAB5c16o)
Hvenær
22. janúar 2024 20:00 til 22:00
Hvar
Kaldársel í Hafnarfirði
Nánar
Brottför kl. 20:00
Sjálfur Störnu-Sævar, líka þekktur sem Sævar Helgi Bragason, stjörnumiðlari frá Háskóla Íslands, svarar spurningum um norðurljósin, stjörnurnar og vetrarbrautina í gönguferð sem helguð er himingeiminum.
Nauðsynlegt er að klæða sig mjög vel og gott er að taka með sjónauka, nesti og heitt á brúsa. Ef ekki viðrar til stjörnuskoðunar þennan dag er ferðinni frestað þar til góðar aðstæður skapast. Það verður þá auglýst á Fésbók og heimasíðu FÍ og HÍ.
Hluti af verðlaunaverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti.
Öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta!
Brottför: Kl. 20 við Kaldársel í Hafnarfirði.
![Með fróðleik í fararnesti: Stjörnur og norðurljós með Sævari Helga við Kaldársel](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/bdjk6.jpg?itok=rHPNlVl3)