Skip to main content

Málvísindakaffi: Áhrif hljómfallshlés á S3-orðaraðir sem innihalda atvikssetningar

Málvísindakaffi: Áhrif hljómfallshlés á S3-orðaraðir sem innihalda atvikssetningar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. janúar 2023 12:00 til 13:00
Hvar 

Árnagarður

Stofa 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Næsta Málvísindakaffi verður haldið í stofu 101 í Árnagarði föstudaginn 6. janúar kl. 12-13. Þar flytur Sigríður Sæunn Sigurðardóttir erindi um niðurstöður tilraunarannsóknar þar sem áhrif hljómfallshlés á möguleika í orðaröð voru könnuð. Erindið ber yfirskriftina Áhrif hljómfallshlés á S3-orðaraðir sem innihalda atvikssetningar. 

Að vanda er hægt að óska eftir tengli fyrir aðgang að lifandi streymi fyrir þau ykkar sem komast ekki á staðinn.

Verið öll velkomin!

Útdráttur fylgir hér fyrir neðan.

Þrátt fyrir að persónubeygðar sagnir séu alla jafna í öðru sæti (S2) í íslensku, eru frávik leyfð við ákveðnar aðstæður (S1-, S3-orðaraðir). Í erindinu fjalla ég um S3-orðaraðir þar sem heilar atvikssetningar standa fremst á undan hefðbundnum S2-setningum, t.d. spurnarsetningum (1).

(1)       Þegar Haraldur fer til Belgíu í sumar, hvað ætlar hann að gera?

Ég kynni niðurstöður úr tilraunarannsókn þar sem áhrif hljómfallshlés (e. prosodic break) á möguleika slíkra orðaraða voru könnuð. Rannsóknin var svokölluð skynjunarrannsókn þar sem málhafar voru beðnir að hlusta á streng þar sem atvikssetning kom fyrir á milli tveggja S2-setninga, A og B, (2).

(2)       Bárður horfir oft á fréttir        þegar Baldvin er ekki heima  Hvað horfir Kjartan oft á?

            A                                             atvikssetning                           B

Á milli atvikssetningarinnar og setninga A og B voru hljómfallshlé af mismunandi lengd. Verkefni þátttakanda var að dæma hvor setningin, A eða B, væri lengri, en svarið endurspeglaði hvort atvikssetningin tilheyrði A eða B. Niðurstöður gefa til kynna að bæði lengd hljómfallshlés og tegund setningar B hafi áhrif á hvort þátttakendur skynji S3 eða ekki. Í þeim tilfellum þar sem B var staðhæfingarsetning virðist S3-orðaröð talin málfræðilega ótæk. Þetta gefur innsýn í flókið samspil hljómfalls og setningafræði og bendir til að hljómfallshlé geti aðeins haft áhrif á möguleika S3-orðaraða ef þær eru setningafræðilega tækar. 

Sigríður Sæunn Sigurðardóttir

Málvísindakaffi: Áhrif hljómfallshlés á S3-orðaraðir sem innihalda atvikssetningar