Ljáðu mér vængi á HönnunarMars 2024 - Spjall við höfund og listamenn

Loftskeytastöðin
Í tilefni HönnunarMars er efnt til viðburðar þar sem fara mun fram spjall um nálgun höfundar og listamannanna við gerð og hönnun sýningarinnar Ljáðu mér vængi í Loftsleytastöðinni. Viðburðurinn fer fram laugardaginn 27. apríl kl. 14-15 og er opinn öllum.
Á sýningunni Ljáðu mér vængi í Loftskeytastöðinni er lögð áhersla á að varpa ljósi á uppvöxt Vigdísar, ævi hennar og störf og þau miklu áhrif sem hún hafði í embætti forseta Íslands og þá miklu athygli sem kjör hennar vakti. Meðal annars er fjallað um framlag Vigdísar til náttúruverndar, lista, mannréttindamála, jafnréttismála og til tungumála og menningar bæði hérlendis og á heimsvísu.
Sýningin Ljáðu mér vængi er opin miðvikudaga til laugardaga frá 13-17.
Í tilefni HönnunarMars er efnt til viðburðar þar sem fara mun fram spjall um nálgun höfundar og listamannanna við gerð og hönnun sýningarinnar Ljáðu mér vængi í Loftsleytastöðinni við Suðurgötu. Viðburðurinn fer fram laugardaginn 27. apríl kl. 14-15 og er opinn öllum.
