Kortlagning á mati íbúa á náttúruvá: Tilraun með Paper2GIS í vettvangsnámskeiði á Íslandi
![Kortlagning á mati íbúa á náttúruvá: Tilraun með Paper2GIS í vettvangsnámskeiði á Íslandi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_gimli_180913_004.jpg?itok=WPGZNMIS)
Askja
Stofa 131
Dr. Jiří Pánek, dósent við Palacky University Olomouc, Tékklandi, flytur fyrirlesturinn Mapping hazard perception: Experiments with Paper2GIS in a field course in Iceland (Kortlagning á mati íbúa á náttúruvá: Tilraun með Paper2GIS í vettvangsnámskeiði á Íslandi)
Ágrip
Landfræðileg upplýsingatækni hefur haft byltingarkennd áhrif á rannsóknir á sviði náttúruvár. Með slíkri tækni bjóðast öflug verkfæri til að sýsla með landfræðileg gögn tengd slíkri vá. Í þessu erindi verður fjallað um Paper2GIS, nýstárlega leið til að afla upplýsinga frá almenningi á vettvangi. Þetta tæki var prófað í alþjóðlegu vettvangsnámskeiði á meistarastigi, sem haldið var á Seyðisfirði með stuðningi frá Aurora-samstarfsneti evrópskra háskóla. Paper2GIS reyndist skilvirkt verkfæri til að auðvelda þátttöku almennings í rannsóknastarfi og öflun gagna almennt í vettvangsnámskeiðum í landfræði. Þessi hugbúnaður getur nýst bæði í rannsóknum, kennslu og önnur verkefni þar sem þarf að innleiða landfræðilega upplýsingatækni á einfaldan og tæknilega viðráðanlegan hátt.
Dr. Jiří Pánek
![Kortlagning á mati íbúa á náttúruvá: Tilraun með Paper2GIS í vettvangsnámskeiði á Íslandi](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/5pvz6.jpg?itok=g2JxPwOy)