Skip to main content

Íslenska stjórnarskráin: Hvað næst?

Íslenska stjórnarskráin: Hvað næst? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. október 2022 12:00 til 17:15
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur (023)

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrir tíu árum, 20. október 2012, fór fram ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem ráðið hafði afhent Alþingi 29. júlí 2011. Kjósendur voru spurðir hvort þeir vildu „leggja tillögur Stjórnlagaráðs til grundvallar nýrri stjórnarskrá“ auk þess sem spurt var sérstaklega um afstöðu til fimm atriða annarra um innihald nýrrar stjórnarskrár, þar á meðal hvort þar skyldi vera ákvæði um að auðlindir væru lýstar þjóðareign.

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni lýstu ríflega tveir þriðju kjósenda sig hlynnta því að leggja tillögur Stjórnlagaráðs til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Þrátt fyrir það lauk kjörtímabili Alþingis án þess að afstaða væri tekin til þess hvort tillögurnar yrðu lagðar til grundvallar og á þeim tíu árum sem liðin eru hefur engin afstaða verið tekin til þess. Tilraunir til að bæta við mikilvægum ákvæðum í núgildandi stjórnarskrá hafa farið út um þúfur.

Á málþinginu Íslenska stjórnarskráin: Hvað næst? verður fjallað um pattstöðu stjórnarskrármálsins, spurt hvað læra megi af gangi þess hingað til, hvort rjúfa megi pattstöðuna og þá hvernig.

(Smellið hér til að fylgjast með málþinginu í streymi).

Dagskrá:

12.00-13.40 (á ensku)

Fyrsti huti: Hvað er hægt að læra af tilraunum til að breyta stjórnarskránni?

  • Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, opnar málþingið.
  • Catherine Dupré, Exeter háskóli: Icelandic Constitutional Reform: lessons and reflections
  • Jón Ólafsson, Háskóli Íslands: Voice of the people, power of the people: On the impact (or non-impact) of public deliberation on constitutional design
  • Ragnar Hjálmarsson, Háskóli Íslands: The Icelandic constitutional process as a reaction to crisis

14.00-15.40 (á ensku)

Annar hluti: Horfur í stjórnarskrármálum á Íslandi og víðar

  • Stefanía Óskarsdóttir, Háskóli Íslands: Political context of constitutional change: institutions, political strategies and interests
  • Kári Hólmar Ragnarsson, Háskóli Íslands: Elements of a way forward for Icelandic constitutional reform
  • Andy Carl, sjálfstæður ráðgjafi: Constitution making in comparative contexts of conflict - paying attention to process

16.00-17.15 (á íslensku)

Þriðji hluti: Hringborðsumræður um sigra og ósigra fortíðarinnar: Aftur á tíunda áratuginn. Hversvegna var hægt að breyta stjórnarskránni þá en ekki nú?

Guðmundur Árni Stefánsson, Kristín Ástgeirsdóttir, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson, Guðrún Hafsteinsdóttir.