Horft út fyrir kynjatvíhyggjuna: Hver er staða trans fólks og kvára á Íslandi?
![Horft út fyrir kynjatvíhyggjuna: Hver er staða trans fólks og kvára á Íslandi? - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_sigrunarsjodur.jpg?itok=8YyXJHjN)
Oddi 202 og á Zoom
Niðurstöður Nýsköpunarsjóðsverkefna um stöðu trans fólks og kvára í íslensku samfélagi og stjórnkerfi verða kynntar á málþingi Stjórnmálafræðideildar, Kvenréttindafélags Íslands og Samtakanna ’78.
Fyrirlesarar: Birta Ósk, MA nemi í kynjafræði og Birta B. Kjerúlf, BA nemi í stjórnmálafræði.
Birta Ósk og Birta B. Kjerúlf kynna niðurstöður verkefna sem þau unnu í sumar með styrk frá Nýsköpunarsjóði Námsmanna. Rannsókn Birtu Óskar “„Að vera kvár á Íslandi: Hvað felst í kynjajafnrétti fyrir kvár?“ sem hán vann í samstarfi við Kvenréttindafélag Íslands gefur góða mynd á hver félagsleg staða kvára er á Íslandi í dag. Kvár falla innan regnhlífarhugtaksins trans og eru fullorðnir kynsegin einstaklingar sem falla á einn eða annan hátt fyrir utan kynjatvíhyggjuna kona-karl. Tillögur þessar eru dregnar úr niðurstöðum fyrrnefndar rannsóknar um kerfislægar hindranir sem kvár eru að verða fyrir í dag. Brýnt er að stjórnvöld útrými þessum hindrunum til þess að styðja betur við þarfir kvára í samfélaginu. Rannsókn Birtu B. Kjerúlf, sem hún vann í samstarfi við Stjórnmáladeild HÍ og Samtökin ‘78 hafði það að markmiði að svara eftirfarandi spurningu: Hver er staða og réttindi trans fólks gagnvart stjórnkerfinu á Íslandi? Enn fremur var markmið rannsóknarinnar að kanna hvort nýta mætti aðferðir kynjasamþættingar (e. gender mainstreaming) til að koma málefnum trans fólks í forgrunn hjá stjórnvöldum. Leitast var við því að svara rannsóknarspurningunni með því að taka viðtöl við einstaklinga úr hópi trans fólks á Íslandi og spyrja þau út í upplifun þeirra á kerfinu. Niðurstöður út viðtölunum voru síðan kortlagðar og greindar.
Málþing Stjórnmálafræðideildar, Kvenréttindafélags Íslands og Samtakanna ’78.
![Horft út fyrir kynjatvíhyggjuna: Hver er staða trans fólks og kvára á Íslandi?](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/q87qx.jpg?itok=DVa1-DNW)