Erasmus+ styrkir fyrir starfsfólk - Kynningarfundur
Háskólatorg
HT-300
Fulltrúi frá Alþjóðasviði kynnir möguleika á ferðastyrkjum til gestakennslu eða starfsþjálfunar í þátttökulöndum Erasmus+ áætlunarinnar. Farið verður yfir umsóknarferlið og skilyrði fyrir styrkjum. Fundurinn verður haldinn í stofu HT-300.
Akademískt starfsfólk getur sótt um styrki til að sinna gestakennslu við evrópska samstarfsskóla eða sótt um starfsþjálfun, sem getur nýst þeim í kennslu og/eða rannsóknum. Einnig er hægt að sækja um sambland af báðu.
Starfsfólki í stjórnsýslu gefst kostur á að heimsækja háskóla, félagasamtök, fyrirtæki eða stofnanir í Evrópu og kynna sér starfshætti og nýjungar í sambærilegum störfum. Starfsfólk getur farið í starfsþjálfun s.s. fylgiþjálfun (job shadowing), á vinnustofur, námskeið, alþjóðavikur eða aðrar skipulegar heimsóknir. Ferðir á tungumálanámskeið og ráðstefnur eru ekki styrktar.
Vakin er athygli á að deildir Háskólans geta sótt um styrki til að bjóða aðilum úr atvinnulífinu innan Evrópu til að sinna gestakennslu og þar með eflt tengsl Háskólans og atvinnulífsins.
Umsóknarfrestur er 17. október 2022
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
Hægt er að hafa samband við Áslaugu Jónsdóttur
aslaugj@hi.is / 525 4997
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um ferðastyrki til gestakennslu eða starfsþjálfunar í þátttökulöndum Erasmus+ áætlunarinnar.